„Við erum bara nýkomnir hérna út. Við byrjum veiðar á hádegi á mánudaginn,“ segir Sigþór Kjartansson, skipstjóri á skuttogaranum Sólbergi ÓF-001, í samtali við 200 mílur. Togarinn er nú staddur utan stranda Norður-Noregs eftir þriggja sólarhringa siglingu á miðin.
Sigþór segir lengd túrsins ráðast af því hversu vel veiðar muni ganga. Spurður hvort viðri vel til veiða segir hann svo ekki vera. „Það er búin að vera helvítis kaldafýla á þessum fáu dögum sem við erum búnir að vera hérna. Hann brælir alltaf upp af og til. Við eigum von á brælu á sunnudaginn, en þetta er svona eins og þetta er. Við erum ekki alveg óvanir þessu heiman að.“
„Maður vonar bara að fólkið heima sleppi vel í gegnum þennan ófögnuð. Ég held að við séum sæmilega varðir hérna,“ segir Sigþór inntur álits á síðustu fregnum af kórónuveiruástandinu á Íslandi.
„Við vorum að vona eftir öflugri veiði en það var komið svolítið fram á vertíðina þegar samningar tókust við Norðmenn. Þannig að það mátti alveg búast við því á norðursvæðinu að það væri farið að síga í seinni hlutann þar,“ segir hann og bætir við að vonir séu bundnar við betri veiðar aðeins sunnar við Lofoten.
Sigþór segir veiðarnar heldur rólegar en að stemningin um borð sé ágæt. Þá skipti sköpum að vera á nýju skipi með góðan aðbúnað fyrir áhöfnina. „Það munar miklu. Maður finnur það glöggt að þótt það séu langir túrar fer það betur með mann og skipið sjálft í brælu. Þetta eru öðruvísi hreyfingar og betri.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 16.7.24 | 399,16 kr/kg |
Þorskur, slægður | 16.7.24 | 406,84 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 16.7.24 | 367,05 kr/kg |
Ýsa, slægð | 16.7.24 | 309,23 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 16.7.24 | 151,84 kr/kg |
Ufsi, slægður | 16.7.24 | 164,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 16.7.24 | 349,26 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.708 kg |
Samtals | 2.708 kg |
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 430 kg |
Ufsi | 21 kg |
Samtals | 451 kg |
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 752 kg |
Karfi | 20 kg |
Samtals | 772 kg |
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 770 kg |
Samtals | 770 kg |
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 685 kg |
Karfi | 36 kg |
Ufsi | 19 kg |
Ýsa | 16 kg |
Samtals | 756 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 16.7.24 | 399,16 kr/kg |
Þorskur, slægður | 16.7.24 | 406,84 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 16.7.24 | 367,05 kr/kg |
Ýsa, slægð | 16.7.24 | 309,23 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 16.7.24 | 151,84 kr/kg |
Ufsi, slægður | 16.7.24 | 164,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 16.7.24 | 349,26 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.708 kg |
Samtals | 2.708 kg |
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 430 kg |
Ufsi | 21 kg |
Samtals | 451 kg |
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 752 kg |
Karfi | 20 kg |
Samtals | 772 kg |
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 770 kg |
Samtals | 770 kg |
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 685 kg |
Karfi | 36 kg |
Ufsi | 19 kg |
Ýsa | 16 kg |
Samtals | 756 kg |