Miklar endurbætur gerðar á umhverfi hafnarinnar

Meðal þess sem verið er að framkvæma þarna er endurnýjun …
Meðal þess sem verið er að framkvæma þarna er endurnýjun á gangstéttinni meðfram Geirsgötu. mbl.is/sisi

Miklar framkvæmdir standa nú yfir við Gömlu höfnina í Reykjavík. Þar er mikið rask þessa stundina og af þeim sökum hefur uppsetning eimreiðarinnar Minør frestast eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu.

Framkvæmdir við Miðbakka og Bryggjugötu (sem liggur samsíða Austurbakka) fela í sér annars vegar lagnavinnu og frágang götu og gangstíga við nýbyggingar við Bryggjugötu og hins vegar lagningu upphitaðs hjólastígs og endurgerð göngustígs meðfram Geirsgötu, auk frágangs á strætóbiðstöð. Þessar upplýsingar er að finna á vef Reykjavíkurborgar. Áætluð verklok eru 1. júlí nk. Verktakinn er Lóðaþjónustan ehf. og hljóðaði verksamningur upp á 157 milljónir króna. Veitur greiða hluta af þeim kostnaði.

Þá hafa einnig staðið yfir miklar framkvæmdir við Ægisgarð, þarna skammt frá. Þær eru á forræði Faxaflóahafna. Gamlir söluskúrar fyrir hvalaskoðunarferðir hafa verið fjarlægðir og verið er að byggja ný söluhús. Jafnframt hafa allar lagnir verið endurnýjaðar og sömuleiðis malbik. Verklok voru áætluð 1. maí en þeim mun seinka vegna þess hve tíðarfarið hefur verið óhagstætt til framkvæmda í vetur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 543,10 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 543,10 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »