Guðmundur Kristjánsson, sem lét í síðustu viku af störfum sem forstjóri Brims hf. segist einfaldlega hafa orðið þreyttur á afskiptum Samkeppniseftirlitsins á félaginu. Greint var frá því í gær að eftirlitið hefði ákveðið að hefja rannsókn er snýr að yfirráðum Guðmunds og tengdra aðila yfir félaginu.
Guðmundur er meirihlutaeigandi Útgerðarfélags Reykjavíkur, sem er stærsti eigandi Brims.
Áður hafði Samkeppniseftirlitið tilkynnt Brim að það muni ekki gera athugasemdir við kaup félagsins á tveimur félögum í Hafnarfirði.
Guðmundur sagði í Kastljósi í kvöld að hann gæti ekkert gert á Íslandi af því að Samkeppniseftirlitið fylgdist stöðugt með honum. Því teldi hann besti fyrir félagið, starfsfólk og hluthafa að stíga til hliðar.
„Mig langaði ekki til þess,“ sagði Guðmundur, sem mun áfram sitja í stjórn Brim og er stærsti eigandi félagsins.
Guðmundur sagði að sér þætti furðulegur sá vilji Samkeppniseftirlitsins að það þyrfti ávallt að hafa samband við það áður en viðskipti ættu sér stað. Það tefði öll viðskipti og gangi einfaldlega ekki.
Guðmundur sagðist áður hafa fylgst með baráttu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Þorsteins Más Baldvinssonar gegn opinberum aðilum og sagðist ekki geta farið í einhverja tíu ára baráttu.
„Það er ekki hægt að stoppa fyrirtæki í þróun út af einhverjum einum manni,“ sagði Guðmundur, sem upplifir persónulega herferð Samkeppniseftirlitsins gegn sér.
„Mig langaði í stríð við þá en skynsemin segir að það sé ekki vit í því. Það er betra að stíga til hliðar og halda áfram með lífið.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 9.2.25 | 623,92 kr/kg |
Þorskur, slægður | 9.2.25 | 790,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 9.2.25 | 455,61 kr/kg |
Ýsa, slægð | 9.2.25 | 411,58 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 9.2.25 | 245,09 kr/kg |
Ufsi, slægður | 7.2.25 | 303,57 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Gullkarfi | 9.2.25 | 380,63 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
8.2.25 Hafdís SK 4 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 1.528 kg |
Skarkoli | 1.359 kg |
Sandkoli | 735 kg |
Steinbítur | 105 kg |
Grásleppa | 30 kg |
Ýsa | 25 kg |
Samtals | 3.782 kg |
8.2.25 Auður Vésteins SU 88 Lína | |
---|---|
Langa | 75 kg |
Steinbítur | 47 kg |
Ýsa | 31 kg |
Þorskur | 28 kg |
Samtals | 181 kg |
8.2.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Þorskur | 460 kg |
Langa | 172 kg |
Ýsa | 93 kg |
Steinbítur | 43 kg |
Keila | 7 kg |
Samtals | 775 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 9.2.25 | 623,92 kr/kg |
Þorskur, slægður | 9.2.25 | 790,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 9.2.25 | 455,61 kr/kg |
Ýsa, slægð | 9.2.25 | 411,58 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 9.2.25 | 245,09 kr/kg |
Ufsi, slægður | 7.2.25 | 303,57 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Gullkarfi | 9.2.25 | 380,63 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
8.2.25 Hafdís SK 4 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 1.528 kg |
Skarkoli | 1.359 kg |
Sandkoli | 735 kg |
Steinbítur | 105 kg |
Grásleppa | 30 kg |
Ýsa | 25 kg |
Samtals | 3.782 kg |
8.2.25 Auður Vésteins SU 88 Lína | |
---|---|
Langa | 75 kg |
Steinbítur | 47 kg |
Ýsa | 31 kg |
Þorskur | 28 kg |
Samtals | 181 kg |
8.2.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Þorskur | 460 kg |
Langa | 172 kg |
Ýsa | 93 kg |
Steinbítur | 43 kg |
Keila | 7 kg |
Samtals | 775 kg |