„Liggur fyrir að einn daginn myndi þetta gerast“

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir viðskiptin hafa verið annars …
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir viðskiptin hafa verið annars vegar framkvæmd með erfðagerningi og hins vegar með sölu milli félaga. Ljósmynd/Samherji

„Það er bara verið að gera þetta á meðan við getum haft áhrif á það hvernig þetta verður gert, eigendurnir. Það liggur svo sem alveg fyrir að einn daginn myndi þetta gerast, en gerum það á þennan hátt sem getur tryggt rekstur fyrirtækisins í óbreyttri mynd,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, í samtali við 200 mílur.

Samherji tilkynnti á vef sínum í dag að aðaleigendur Samherja hf., Helga Steinunn Guðmundsdóttir, Þorsteinn Már Baldvinsson, Kristján Vilhelmsson og Kolbrún Ingólfsdóttir, höfðu framselt til barna sinna 84,5% hlut í fyrirtækinu.

Þorsteinn Már segir viðskiptin hafa verið annars vegar framkvæmd með erfðagerningi, fyrirframgreiddum arfi, og hins vegar með sölu milli félaga.

Spurður hvort viðskiptin hafi miðað að því að halda Samherja sem fjölskyldufyrirtæki, segir hann svo vera. „Já, á svipaðan hátt og verið hefur.“

„Eftir 37 ár er búið að fara í gegnum mörg breytingaskeið og fyrirtækið þarf alltaf að fylgjast með og endurnýja sig, hvort sem það er inn á við eða út á við. Það þarf alltaf að aðlaga sig kaupendunum og þeim breytingum sem verða á neytendum sem eru búnar að vera gríðarlega miklar. […] Ef fyrirtækið ætlar að standa sig þá verður það að aðlagast neytendum á hverjum tíma, við framleiðum vörur fyrir ótrúlega marga og það þarf að halda áfram að þróa fyrirtækið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 543,10 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 543,10 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »