Bann við hreinsunarbúnaði á ábyrgð Alþingis

Umhverfisstofnun segir að það kunni að vera ástæða til þess …
Umhverfisstofnun segir að það kunni að vera ástæða til þess að endurskoða ákvæði laga um hreinsunarbúnað skipa. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það kann að vera að ástæða sé til þess að endurskoða ákvæði um hreinsibúnað,“ segir í svari Umhverfisstofnunar vegna fyrirspurnar 200 mílna um notkun útblásturshreinsunarkerfa skipa með opna hringrás sem dæla úrgangi kerfanna í hafið.

Tilefni fyrirspurnarinnar var skýrsla rannsóknarnefndar samgönguslysa um atvik í höfninni í Vestmannaeyjum þar sem nefndin beindi því til yfirvalda að skoða hvort ekki sé ástæða til að banna opinn vothreinsibúnað við strendur landsins.

Í september í fyrra hafði hreinsunarbúnaður um borð í Lagarfossi, skipi Eimskips, verið í notkun þegar skipið fór frá bryggju með þeim afleiðingum að sjóblandað sót sem inniheldur brennisteinsagnir skolaðist í höfnina.

Fram kemur í skýrslunni um atvikið að þessi búnaður hafi víða verið bannaður af umhverfissjónarmiðum og þurfi skip því að skipta yfir í vistvænna eldsneyti áður en siglt er til þessara staða.

„Það er á ábyrgð Alþingis að setja lög og ráðherra að setja reglugerðir til að framfylgja þeim. Báðir þessir aðilar hafa það í hendi sér að leggja til strangari reglur hvað varðar losun vegna brennslu á skipaeldsneyti. Besta leiðin í þessu væri þá að gera það í alþjóðasamstarfi og byggt á áhættumati,“ segir í svari Umhverfisstofnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.7.24 398,14 kr/kg
Þorskur, slægður 17.7.24 352,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.7.24 354,82 kr/kg
Ýsa, slægð 17.7.24 154,86 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.7.24 160,89 kr/kg
Ufsi, slægður 17.7.24 214,63 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 17.7.24 262,52 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.7.24 Andri SH 450 Grásleppunet
Grásleppa 984 kg
Samtals 984 kg
17.7.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Steinbítur 10.511 kg
Skarkoli 2.241 kg
Þorskur 1.976 kg
Ýsa 496 kg
Sandkoli 193 kg
Samtals 15.417 kg
17.7.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Ýsa 3.997 kg
Skarkoli 601 kg
Þorskur 425 kg
Ufsi 23 kg
Langa 6 kg
Þykkvalúra 2 kg
Samtals 5.054 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.7.24 398,14 kr/kg
Þorskur, slægður 17.7.24 352,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.7.24 354,82 kr/kg
Ýsa, slægð 17.7.24 154,86 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.7.24 160,89 kr/kg
Ufsi, slægður 17.7.24 214,63 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 17.7.24 262,52 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.7.24 Andri SH 450 Grásleppunet
Grásleppa 984 kg
Samtals 984 kg
17.7.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Steinbítur 10.511 kg
Skarkoli 2.241 kg
Þorskur 1.976 kg
Ýsa 496 kg
Sandkoli 193 kg
Samtals 15.417 kg
17.7.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Ýsa 3.997 kg
Skarkoli 601 kg
Þorskur 425 kg
Ufsi 23 kg
Langa 6 kg
Þykkvalúra 2 kg
Samtals 5.054 kg

Skoða allar landanir »