Stærsta sjókví sem smíðuð hefur verið er nú við strendur Namibíu á leið sinni frá skipasmíðastöð í Yantai í Kína til Hadseløya í Norður-Noregi. Sjókvíin, sem er í eigu norska fiskeldisfyrirtækisins Nordlaks, nefnist „Havfarmen“, vegur um 33 þúsund tonn, er 385 metra löng og 59 metrar að breidd. Þetta risavaxna mannvirki á að nýta undir úthafseldi á laxi.
Fram kemur í umfjöllun norska ríkisútvarpsins NRK að kostnaður við smíðina sé yfir milljarði norskra króna, eða yfir 14,4 milljörðum íslenskra króna. Þá mun Havfarmen geta haldið um tíu þúsund tonnum af eldislaxi, en hefðbundnar kvíar halda aðeins 750 til 1.000 tonnum af laxi.
Miðað við meðalverð á eldislaxi á mörkuðum í síðustu viku, 55,35 norskar krónur á kíló, mun heildarverðmæti þess lax sem er í kvínni á hverjum tíma nema 553,5 milljónum norskra króna jafnvirði tæplega átta milljarða íslenskra króna.
Um er að ræða fyrri risasjókví Nordlaks af tveimur og hefur hún verið á leið til Noregs síðan 9. apríl. Sagt er frá því á vef fyrirtækisins að 8. maí hafi verið byrjað að leggja sjö kílómetra rafstreng sem eigi að veita eldisstöðinni rafmagn. Um 30 til 40 koma að því verkefni, en rafstrengurinn vegur um 90 tonn.
Verkefnið hefur verið í undirbúningi í fleiri ár, en árið 2017 voru samþykkt áform fyrirtækisins um tvær eldisstöðvar af þessum toga frá sjávarútvegsráðuneytinu í Noregi. Búist er við að Havfarmen komi á áfangastað í sumar en óljóst er hvenær starfsemi mun hefjast.
Það er sérhannaða flutningaskipið Boka Vanguard sem flytur mannvirkið milli heimshornanna, en skipið er það stærsta sem til er af sinni gerð.
Thomas Myhre, sölu- og markaðsstjóri hjá NSK Ship Design, segir í samtali við NRK að ekkert mannvirki til hafs hafi verið byggt sem er lengra en Havfarmen. „Havfarmen er einstakt. Þetta er stærsta mannvirki sem flutningsakip hefur nokkru sinni flutt.“