Fylgjast grannt með kjaradeilu skipverja Herjólfs

Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari.
Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari. mbl.is/Kristinn Magnússon

Starfsmenn embættis ríkissáttasemjara fylgjast vel með kjaradeilu skipverja Herjólfs í Sjómannafélagi Íslands og Herjólfs ohf. sem nú stendur yfir og fundur verður boðaður þegar þörf verður á því segir Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari í samtali við mbl.is.

Önnur vinnustöðvun af þremur boðuðum hefst á miðnætti í kvöld og mun standa yfir í tvo sólarhringa. Að óbreyttu mun þriðja vinnustöðvunin hefjast aðfaranótt 21. júlí og standa yfir í þrjá sólarhringa.

Deiluaðilar funduðu miðvikudaginn 8. júlí en komust lítt áleiðis. Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Íslands, sagði í samtali við mbl.is í gær að Sjómannafélagið hefði boðið Herjólfi ohf. málamiðlun til að fresta vinnustöðvuninni en að henni hefði verið hafnað.

Eru í sambandi við deiluaðila

„Frest­un ein og sér er ekki að gera neitt fyr­ir okk­ur,“ sagði Guðbjart­ur Ell­ert Jónsson, fram­kvæmd­ar­stjóri Herjólfs ohf., í sam­tali við mbl.is í gærkvöldi. Hann segir að á fundum samninganefnda hafi komið fram kröfur frá Sjómannafélaginu í tíu liðum sem voru þess eðlis að ekki var hægt að ræða þær neitt frekar.

„Við fylgjumst vel með, erum í sambandi við deiluaðila og boðum fund þegar við teljum að það sé árangursríkt,“ segir Aðalsteinn í samtali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 9.2.25 623,92 kr/kg
Þorskur, slægður 9.2.25 790,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 9.2.25 455,61 kr/kg
Ýsa, slægð 9.2.25 411,58 kr/kg
Ufsi, óslægður 9.2.25 245,09 kr/kg
Ufsi, slægður 7.2.25 303,57 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 9.2.25 380,63 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.2.25 Hafdís SK 4 Dragnót
Þorskur 1.528 kg
Skarkoli 1.359 kg
Sandkoli 735 kg
Steinbítur 105 kg
Grásleppa 30 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 3.782 kg
8.2.25 Auður Vésteins SU 88 Lína
Langa 75 kg
Steinbítur 47 kg
Ýsa 31 kg
Þorskur 28 kg
Samtals 181 kg
8.2.25 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 460 kg
Langa 172 kg
Ýsa 93 kg
Steinbítur 43 kg
Keila 7 kg
Samtals 775 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 9.2.25 623,92 kr/kg
Þorskur, slægður 9.2.25 790,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 9.2.25 455,61 kr/kg
Ýsa, slægð 9.2.25 411,58 kr/kg
Ufsi, óslægður 9.2.25 245,09 kr/kg
Ufsi, slægður 7.2.25 303,57 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 9.2.25 380,63 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.2.25 Hafdís SK 4 Dragnót
Þorskur 1.528 kg
Skarkoli 1.359 kg
Sandkoli 735 kg
Steinbítur 105 kg
Grásleppa 30 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 3.782 kg
8.2.25 Auður Vésteins SU 88 Lína
Langa 75 kg
Steinbítur 47 kg
Ýsa 31 kg
Þorskur 28 kg
Samtals 181 kg
8.2.25 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 460 kg
Langa 172 kg
Ýsa 93 kg
Steinbítur 43 kg
Keila 7 kg
Samtals 775 kg

Skoða allar landanir »