Samherji skorar á RÚV

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. Ljósmynd/Þórhallur Jónsson

Í framhaldi af þætti Samherja um Seðlabankamálið svokallaða og vinnubrögð Ríkisútvarpsins í því máli, hafa útvarpsstjóri og fréttastjóri Ríkisútvarpsins sent frá sér yfirlýsingu. Í henni er ekki tekið efnislega á meginfullyrðingunni í þætti Samherja, um að skýrslan sem Ríkisútvarpið byggði allan málarekstur sinn á, hafi aldrei verið til.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu á vef Samherja í framhaldi af þætti sem fyrirtækið birti á Youtube-rás sinni í morgun vegna ásakana um að fyrirtækið væri að selja karfa á und­ir­verði til eig­in dótt­ur­fé­lags árið 2012.

Á vef Samherja segir að yfirlýsing útvarpsstjóra og fréttastjóra RÚV sé full af stóryrðum þar sem Samherja er brigslað um annarlegar hvatir og óeðlileg vinnubrögð nú þegar fyrirtækið ber loks hönd fyrir höfuð sér eftir rangar ásakanir Ríkisútvarpsins um margra ára skeið.

Félaginu er borið á brýn að byggja á „tilhæfulausum ásökunum“ rætt er um að „stórfyrirtæki leggi í persónulega herferð gegn blaðamanni með áratuga reynslu“ í þeim „eina tilgangi að skaða mannorð fréttamanns“ og að um sé að ræða „kerfisbundna atlögu gegn fréttamiðlum,” segir enn fremur í yfirlýsingu Samherja.

Bent er á að við vinnslu Kastljóssþáttarins, sem var sýndur 27. mars 2012, hafi Samherja aldrei gefinn kostur á að bregðast við þeim upplýsingum sem þátturinn var sagður byggja á, þvert á vinnureglur Ríkisútvarpsins. Í yfirlýsingu útvarpsstjórans og fréttastjórans í dag er því haldið fram að skýrsla Verðlagsstofu skiptaverðs sé raunverulega til og skorar Samherji á RÚV að birta skýrsluna í heild sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »