Heildarframleiðsla í laxeldi áætluð 31.500 tonn í ár

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði grein fyrir horfum í fiskeldi og áherslu á útgáfu rekstrarleyfa í ríkisstjórn í morgun.

Í minnisblaði ráðherra kemur fram að heildarframleiðsla í laxeldi var 11.265 tonn árið 2017, en var 26.957 árið 2019 og er áætluð um 31.500 tonn í ár. Útflutningsverðmæti fiskeldis var 25 ma.kr. í fyrra eða sem nemur tæplega 2% af heildarútflutningi. Þá er útflutningsverðmæti fiskeldis áætlað um 35 ma.kr. árið 2021 eða sem nemur tæplega 3% af heildarútflutningi, að því er sjávarútvegsráðuneytið greinir frá. 

Þá segir, að með auknu framleiðslumagni verði þessi verðmætaaukning enn meiri á allra næstu árum. Á sama tíma muni beinar tekjur ríkissjóðs hækka samhliða á grundvelli laga um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð.

Matvælastofnun fær aukið fjármagn

Matvælastofnun sinnir almennri stjórnsýslu með fiskeldi, m.a. hefur eftirlit með rekstraraðilum og gefur út rekstrarleyfi. Samhliða miklum vexti greinarinnar undanfarin ár hefur málsmeðferð rekstrarleyfisveitinga vegna fiskeldis þyngst umtalsvert. Til að bregðast við þessu fékk Matvælastofnun aukið fjármagn árið 2019 til að ráða inn tvo starfsmenn til að mæta þessari þróun, að því er ráðuneytið greinir frá. 

„Hinn 27. mars sl. kynnti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 15 aðgerðir til að bregðast við áhrifum COVID-19 á íslenskan landbúnað og sjávarútveg. Meðal aðgerða var að flýta afgreiðslu rekstrarleyfa í fiskeldi og styrkja eftirlit og stjórnsýslu með greininni enda gæti það haft í för með sér mikla fjárfestingu hér á landi og ráðningu á fleira starfsfólki.

Ljóst er að aukin áhersla á afgreiðslu rekstrarleyfa í fiskeldi hefur skilað árangri. Þannig má sjá á neðangreindri mynd að árið 2018 var búið að gefa út rekstrarleyfi fyrir hámarkslífmassa á yfir 45.000 tonnum í íslensku sjókvíaeldi en nú hafa verið gefin út leyfi fyrir 79.800 tonnum. Fyrir lok þessa árs er gert ráð fyrir að þessi tala verði komin í um 86.500 tonn á sama tíma og heildarframleiðsla verði um 31.500 tonn.

Graf/Sjávarútvegsráðuneytið

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið í samráði við Matvælastofnun vinnur nú að því að styrkja stjórnsýslu fiskeldis til framtíðar enn frekar. Við þá vinnu verður sérstaklega horft til þess að tengja þá vinnu við áætlun ráðuneytisins um að fjölga starfsmönnum stofnana á landsbyggðinni sem heyra undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Þannig liggur fyrir að í þessum mánuði verður starfsstöð Matvælastofnunar á Ísafirði styrkt enn frekar til að sinna stjórnsýslu fiskeldis,“ segir ráðuneytið 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »