Goðafoss og Laxfoss í endurvinnslu á Indlandi

Goðafoss á siglingu.
Goðafoss á siglingu. mbl.is/Ómar Óskarsson

Gámaskipin Goðafoss og Laxfoss sem Eimskip seldi á síðasta ári voru sett í endurvinnslu á Indlandi í sumar.

Fram kemur í tilkynningu að fyrirtækið hafi fylgt lögum og reglum í söluferlinu í einu og öllu og hafi selt skipin til áframhaldandi rekstrar en ekki til endurvinnslu.

Tilkynning var send út eftir að fyrirspurn um málið barst frá RÚV.

Fram kemur að skipin hafi verið boðin til sölu í gegnum nokkra alþjóðlega skipamiðlara. Aðeins einn gerði skuldbindandi kauptilboð sem að auki samþykkti að leigja Eimskip skipin til baka eftir söluna svo félagið gæti notað þau tímabundið í sinni þjónustu.

Mótaðili Eimskips við söluna var GMS, viðurkenndur alþjóðlegur aðili, sem er stærsti kaupandi í heimi á notuðum skipum. Lengi hafði legið fyrir að Goðafoss og Laxfoss yrðu seld, enda orðin 25 ára. Þegar nýju skipin, Dettifoss og Brúarfoss, yrðu afhent myndi félagið leita leiða til að selja hin skipin.

Nýr eigandi tók við rekstri skipanna í upphafi þessa árs en samhliða sölunni í desember síðastliðnum gerði Eimskip samning um leigu skipanna meðan beðið var eftir nýju skipunum tveimur.

Óvæntar og óhagstæðar markaðsaðstæður

Vegna óvæntra og óhagstæðra markaðsaðstæðna var skipunum skilað á vormánuðum fyrr en áætlað hafði verið. Í kjölfarið tók nýr eigandi þeirra ákvörðun um að selja skipin í endurvinnslu á Indlandi. Þar er skipum siglt upp í fjöru þar sem endurvinnsla fer fram. Yfir 90% af skipaflota heims mun vera endurunninn með þessum hætti, að því er segir í tilkynningunni.

Eimskip tók ekki ákvörðun um að skipin yrðu sett í endurvinnslu. Fyrirtækið hefur fengið upplýsingar um að skipin hafi verið seld til endurvinnslu, annars vegar til Malwi Ship Breaking CO no. 58 og hins vegar Gohilwad Ship Breaking CO no. 87A. Báðar stöðvarnar eru staðsettar á Alang á Indlandi og starfa samkvæmt „Recycling of Ships Act, 2019“ sem eru byggð á alþjóðlega Hong Kong-samningnum um örugga og umhverfisvæna endurvinnslu skipa frá 2009.

Eimskip hefur verið fullvissað um að skipin hafi verið endurunnin í samræmi við gildandi reglur og samkvæmt ISO gæða- og öryggis stöðlum.

„Eimskip fylgdi í einu og öllu lögum og reglum í þessu söluferli og seldi skipin til áframhaldandi rekstrar en ekki til endurvinnslu. Félagið tekur umræðu um þetta mál alvarlega, enda markmið þess að vera samfélagslega ábyrgt,“ segir í tilkynningunni.

 Frekari upplýsingar um endurvinnslu skipa

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 680 kg
Samtals 680 kg
24.7.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.038 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.046 kg
24.7.24 Kristinn ÞH 163 Handfæri
Þorskur 1.519 kg
Ufsi 47 kg
Samtals 1.566 kg
24.7.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 668 kg
Samtals 1.931 kg
24.7.24 Vonin NS 41 Handfæri
Ufsi 511 kg
Þorskur 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 566 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 680 kg
Samtals 680 kg
24.7.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.038 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.046 kg
24.7.24 Kristinn ÞH 163 Handfæri
Þorskur 1.519 kg
Ufsi 47 kg
Samtals 1.566 kg
24.7.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 668 kg
Samtals 1.931 kg
24.7.24 Vonin NS 41 Handfæri
Ufsi 511 kg
Þorskur 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 566 kg

Skoða allar landanir »