Lánsbáturinn kominn til landsins

Phoenix er með 61 tonns dráttargetu, nokkru minni en Magni
Phoenix er með 61 tonns dráttargetu, nokkru minni en Magni Mynd/Faxaflóahafnir

Kominn er til Reykjavíkur hollenskur dráttarbátur, Phoenix, sem Faxaflóahafnir hafa fengið að láni frá hollensku skipasmíðastöðinni Damen. Báturinn verður hér fram í desember á meðan stöðin vinnur að lagfæringum á hinum nýja dráttarbáti, Magna. Hann var smíðaður fyrir Damen í Víetnam.

Sem kunnugt er kom Magni til landsins í lok febrúar sl. Fljótlega kom í ljós að ekki var allt með felldu varðandi bátinn. Svo miklir gallar voru á smíðinni að ákveðið var að sigla bátnum til viðgerða í Hollandi.

Listi yfir smíðagallana er langur. Alvarlegasti gallinn var sá að hvorug aðalvél var rétt staðsett og þarf að rétta þær af. Þá þarf að skipta um togspil að framan og þrífa eldsneytiskerfi og tanka. Öll atriði á verkefnalistanum eru í ábyrgð og er allur kostnaður sem til fellur greiddur af Damen, samkvæmt upplýsingum frá Faxaflóahöfnum. Áætlað er að viðgerðum á Magna ljúki í lok nóvember en þá er heimsigling til Reykjavíkur eftir. Gísli Jóhann Hallsson yfirhafnsögumaður og Elliði Aðalsteinsson yfirvélstjóri fylgjast með viðgerðunum.

Phoenix verður mannaður starfsmönnum Faxaflóahafna og fara þeir í þjálfun næstu daga. sisi@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.8.24 488,89 kr/kg
Þorskur, slægður 27.8.24 335,12 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.8.24 197,07 kr/kg
Ýsa, slægð 27.8.24 160,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.8.24 188,12 kr/kg
Ufsi, slægður 27.8.24 191,43 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 27.8.24 223,62 kr/kg
Litli karfi 26.8.24 32,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 27.8.24 250,84 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.8.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 1.274 kg
Samtals 1.274 kg
27.8.24 Blíðfari ÓF 70 Handfæri
Þorskur 877 kg
Ufsi 89 kg
Karfi 11 kg
Ýsa 7 kg
Samtals 984 kg
27.8.24 Sævík GK 757 Lína
Þorskur 8.024 kg
Karfi 295 kg
Keila 206 kg
Hlýri 138 kg
Ýsa 36 kg
Ufsi 24 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 8.727 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.8.24 488,89 kr/kg
Þorskur, slægður 27.8.24 335,12 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.8.24 197,07 kr/kg
Ýsa, slægð 27.8.24 160,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.8.24 188,12 kr/kg
Ufsi, slægður 27.8.24 191,43 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 27.8.24 223,62 kr/kg
Litli karfi 26.8.24 32,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 27.8.24 250,84 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.8.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 1.274 kg
Samtals 1.274 kg
27.8.24 Blíðfari ÓF 70 Handfæri
Þorskur 877 kg
Ufsi 89 kg
Karfi 11 kg
Ýsa 7 kg
Samtals 984 kg
27.8.24 Sævík GK 757 Lína
Þorskur 8.024 kg
Karfi 295 kg
Keila 206 kg
Hlýri 138 kg
Ýsa 36 kg
Ufsi 24 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 8.727 kg

Skoða allar landanir »