„Sérstaklega stór og myndarlegur“

Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á Berki NK, segir kolmunnan sem nú …
Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á Berki NK, segir kolmunnan sem nú er að veiðast í lögsögunni einstaklega stóran og myndarlegan. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Bjarni Ólafsson AK, Börkur NK og Beitir NK, skip Síldarvinnslunnar, hafa á stuttum tíma landað myndarlegum afla í Neskaupstað og hefur kolmunninn og síldin verið fyrirferðamikil.

Í nótt kom Bjarni Ólafsson AK til hafnar með 1.835 tonn af kolmunna og er það þriðji kolmunnafarmurinn sem skipið landar á skömmum tíma, að því er segir í færslu á vef Síldarvinnslunnar. „Þessi veiðiferð gekk afskaplega vel og við fengum aflann um 60 mílur beint út af Norðfirði. Það er stutt að fara og þetta er eins þægilegt og það getur verið,“ er haft eftir Runólfi Runólfssyni skipstjóra.

Stærsta holið 560 tonn

Það tók aðeins fimm hol að ná aflanum segir Runólfur sem þykir ánægjulegt að geta veitt kolmunnann í íslenskri lögsögu, en það var 2018 sem það var hægt að ná í kolmunnann í einhverjum mæli í lögsögunni síðast, að sögn Runólfs.

Bjarni Ólafsson AK.
Bjarni Ólafsson AK. Ljósmynd/Smári Geirsson - Síldarvinnslan

„Stærsta holið var 560 tonn og það minnsta um 200 tonn. Það er bara dregið yfir daginn. Við köstum klukkan hálfsjö á morgnana og drögum í tíu og hálfan tíma. Það er látið reka yfir nóttina því þá gengur fiskurinn upp í sjó og dreifir sér. Hér er um að ræða stóran og fallegan kolmunna, fiskurinn er í reynd ótrúlega fallegur. Nú er að fjölga skipum á miðunum. Víkingur og Venus eru að hefja kolmunnaveiðar og Börkur og Beitir eru farnir að veiða kolmunna á milli þess sem þeir veiða síld.“

Náði kolmunna með síldartrollinu

Strax og lokið var við að landa um þúsund tonnum af síld úr Beiti NK í Neskaupstað í gær var hafist handa við að landa 630 tonnum af síld og 250 tonnum af kolmunna úr Berki NK sem náði einu holi af kolmunna með síldartrollinu.

„Þetta er sérstaklega stór og myndarlegur kolmunni sem þarna fæst. Við höfum ekki séð svona stóran kolmunna í mörg ár. Við munum ljúka við að landa í kvöld og þá verður örugglega strax haldið til kolmunnaveiða á ný,“ er haft eftir Hjörvari Hjálmarssyni skipstjóra á Berki í færslunni.

Beitir NK snéri aftur til veiða í gærkvöldi og er gert ráð fyrir að hann veiði kolmunna fram á sunnudag, en þá mun hann hefja síldarveiðar og koma til löndunar á mánudag.

Börkur NK, skip Síldarvinnslunnar.
Börkur NK, skip Síldarvinnslunnar. mbl.is/Þorgeir Baldursson
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 680 kg
Samtals 680 kg
24.7.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.038 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.046 kg
24.7.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 668 kg
Samtals 1.931 kg
24.7.24 Vonin NS 41 Handfæri
Ufsi 511 kg
Þorskur 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 566 kg
24.7.24 Kolga BA 70 Handfæri
Ufsi 5.813 kg
Karfi 191 kg
Langa 106 kg
Samtals 6.110 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 680 kg
Samtals 680 kg
24.7.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.038 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.046 kg
24.7.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 668 kg
Samtals 1.931 kg
24.7.24 Vonin NS 41 Handfæri
Ufsi 511 kg
Þorskur 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 566 kg
24.7.24 Kolga BA 70 Handfæri
Ufsi 5.813 kg
Karfi 191 kg
Langa 106 kg
Samtals 6.110 kg

Skoða allar landanir »