Skipverjar fara frá borði en þrettán eru smitaðir

Skipverjar á Júlíusi Geirmundssyni var í dag heimilað að fara …
Skipverjar á Júlíusi Geirmundssyni var í dag heimilað að fara frá borði. Níu þeirra eru með mótefni en þrettán eru enn smitaðir. Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson

Skipverjarnir 25 á frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni ÍS fara frá borði í dag. „Níu þeirra hafa jafnað sig og eru með mótefni, þrettán eru smitaðir og verða í einangrun og þrír eru hvorki smitaðir né með mótefni og fara í sóttkví,“ segir Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, í samtali við 200 mílur.

Gylfi segir að af þeim sem hafa greinst með veiruna fari fimm í farsóttarhús í nágrenni Ísafjarðar en aðrir fari til síns heima eða í íbúðir á eigin vegum víða um land. Þá verður einn eftir um borð í skipinu.

Fram kemur í tilkynningu á facebooksíðu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða að „vettvangsstjórn og aðgerðastjórn hefur verið virkjuð við uppsetningu farsóttahússins, flutning á fólki og annað sem tengist málinu. Samráð hefur verið haft við sóttvarnalækni, Sjúkratryggingar Íslands, Rauða kross Íslands og fleiri“.

Fyrsta sýnatakan átti sér stað er skipið kom til hafnar á Ísafirði 18. október til að taka olíu, en áhöfnin hafði þá verið um þrjár vikur á sjó og sýndu nokkrir starfsmenn flensueinkenni. Niðurstöður sýnatökunnar lágu fyrir að kvöldi 19. október og sýndu að meirihluti áhafnarinnar var smitaður af kórónuveirunni. Var skipinu snúið til hafnar á ný.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 680 kg
Samtals 680 kg
24.7.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.038 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.046 kg
24.7.24 Kristinn ÞH 163 Handfæri
Þorskur 1.519 kg
Ufsi 47 kg
Samtals 1.566 kg
24.7.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 668 kg
Samtals 1.931 kg
24.7.24 Vonin NS 41 Handfæri
Ufsi 511 kg
Þorskur 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 566 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 680 kg
Samtals 680 kg
24.7.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.038 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.046 kg
24.7.24 Kristinn ÞH 163 Handfæri
Þorskur 1.519 kg
Ufsi 47 kg
Samtals 1.566 kg
24.7.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 668 kg
Samtals 1.931 kg
24.7.24 Vonin NS 41 Handfæri
Ufsi 511 kg
Þorskur 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 566 kg

Skoða allar landanir »