Allt að fjögurra ára fangelsi fyrir vanrækslu á sjó

Stefnt er að því að klára yfirheyrslur í dag.
Stefnt er að því að klára yfirheyrslur í dag. Ljósmynd/Sigurður Bergþórsson

Lögreglan á Vestfjörðum stefnir að því að klára yfirheyrslur yfir skipverjum á frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni  ÍS-270 í dag segir Karl Ingi Vilbergsson, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum. Hann segir að ekki sé búið að ræða við skipstjóra skipsins. 

„Við ætlum að klára að tala við vitnin og tökum svo ákvörðun um það hvort einhver verður sakaður um brot,“ segir Karl Ingi í samtali við mbl.is. 

Að sögn hans hefur tekist vel að ná heildarmynd á málið. „Já, við komumst yfir heilmikið í gær og vonumst til þess að ná að klára yfirheyrslurnar í dag,“ segir Karl. 

Hann segir að vel hafi gengið að ná í skipverjana 25 enda séu þeir allir í sóttkví. 

Vanræksla refsiverð 

Í sjómannalögum eru m.a. tilgreind réttindi og skyldur skipstjóra. Er þar m.a. tilgreint að refsing vegna vanrækslu skipstjóra geti varðað allt að fjögurra ára fangelsi. Verði af ákæru má m.a. gera ráð fyrir því að málið varði 34. og 76. grein sjómannalaga. 

Í öðru ákvæði 34. greinar laganna segir. „Ef ástæða er til að ætla að skipverji sé haldinn sjúkdómi sem hætta stafar af fyrir aðra menn á skipinu skal skipstjóri láta flytja sjúklinginn í land ef eigi reynist unnt að verjast smithættu á skipinu.“

Í 76. grein laganna segir að „ef skipstjóri misbeitir agavaldi sínu eða beiti hann ónauðsynlegri harðneskju við skipverja, vanræki skyldur sínar við veika eða slasaða skipverja eða láti hann skipverja eigi fá lögboðið viðurværi varðar það sektum, fangelsi allt að tveimur árum eða fangelsi allt að fjórum árum ef miklar sakir eru“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 543,10 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 543,10 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »