Norskur þorskur kann að missa MSC-vottun

MSC-vottun getur haft í för með sér að hærra verð …
MSC-vottun getur haft í för með sér að hærra verð fæst fyrir furðina. Samkeppnisstaða Norðmanna kann að skerðast við að norsku þorskur missi vottunina á næsta ári, en hún gefur til kynna hvort veiðarnar séu sjálfbærar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Markaðsstofa norskra sjávarafurða hyggst leggja áherslu á hefðbundna markaði í skugga þess að samkeppnisstaða kann að skerðast þegar afurðir verða óvottaðar.

Sjávarafurðaráð Noregs (Norges Sjømatråd) birti í byrjun mánaðarins markaðsáætlun fyrir árið 2021 en ráðið annast markaðsþróun og stuðning við útflutning frá Noregi og er fjármagnað með útflutningsskatti sem allar norskir útflutningsaðilar sjávarafurða verða að greiða.

Fram kemur á vef ráðsins að áætlanir gera ráð fyrir að ráðstafað verði um 266 milljónum norskra króna, jafnvirði fjögurra milljarða íslenskra króna, í markaðssetningu norskra sjávarafurða á næsta ári. Sérstök áhersla er sögð lögð á hefðbundna markaði vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins.

„Því fyrr sem við afgreiðum áætlun næsta árs, því betri grundvöll höfum við til að ná fullum árangri með því að útflytjendur og greinin í heild nái að nýta markaðsstarf sjávarafurðasráðsins í takti við eigin markaðssetningu. Meginmarkaðir okkar, svo sem Frakkland, Portúgal, Japan og Bretland, eru í forgangi á næsta ári. En við verðum að vera sveigjanleg, svo að markaðsstarf okkar sé stöðugt aðlagað þeim áskorunum sem heimsfaraldurinn hefur í för með sér,“ segir Børge Grønbech, forstöðu- maður alþjóðlegrar starfsemi ráðsins.

Hann útskýrir að það sé mikil- vægt að dreifa kröftum ráðsins ekki of mikið. Því sé áhersla lögð á að styrkja norskar afurðir á þeim mörkuðum sem þær hafa staðið sterkar í gegnum tíðina, en þetta segir Grønbech sé í samræmi við óskir geirans í Noregi.

Ræða áhrif á kaupvilja

Mestu fjármununum mun vera veitt til markaðsstarfs í Frakklandi eða 23 milljónir norskra króna, jafnvirði 346 milljóna íslenskra króna. Þá mun markaðsstarfið á Spáni kosta tæplega 210 milljónir íslenskra króna og 286 milljónir íslenskra króna í Þýskalandi.

Tilkynningin um áherslur á hefðbundna meginmarkaði Norðmanna kemur í skugga þess að ákveðnir ýsu- og þorskstofnar í Noregi stefna í að missa MSC-vottun á næsta ári. Meðal þess sem var á dagskrá ráðstefnu norska sjávarafurðaráðsins á þriðjudag var hvaða áhrif það mun hafa á kaupvilja að missa vottunina. Það má því gera ráð fyrir að einhverjar áhyggjur eru þar ytra um hvaða áhrif þetta kann að hafa á samkeppnisstöðu norskra útgerðarfyrirtækja.

MSC-vottun er veitt veiðarfærum og fiskistofnum samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum staðli Marine Stewardship Council. Þá hefur sérstakt MSC-merki fest sig í sessi og seljendur vottaðra sjávarafurða verða þess varir að margir kaupendur hafa markað sér þá stefnu að kaupa einungis fisk sem kemur með vottun um sjálfbærar og ábyrgar veiðar, auk þess sem vottunin virðist skila sér í betra verði.

Rennur út í apríl

Í fyrra var tilkynnt að þorskstofnar í Norðursjó myndu missa MSC-vottun í kjölfar snöggrar hnignunar stofnsins sem er talinn í veikri stöðu. Jafnframt var í desember þorskkvóti í Norðursjó skorinn niður um 40%, en þorskveiðar Norðmanna í Norðursjó eru aðeins um 1,5% af heildarmagni þorskveiða þeirra.

Nú bætist við að þorsk- og ýsustofnar sem eru innan 12 sjómílna frá ströndum Noregs kunna að missa MSC-vottunina 26. apríl á næsta ári, að því er fram kemur á vef norskra sjávarútvegssamtaka, Norges Fiskarlag. Þar segir að í fyrra hafi verið hafin vinna við að endurnýja vottunarskírteini fyrir þorsk og ýsu en eins og staðan er í umsóknarferlinu nú, bendir allt til þess að strandstofnarnir fá ekki vottun, að sögn Tor Bjørklund Larsen, umhverfisráðgjafa Norges Fiskarlag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.7.24 496,50 kr/kg
Þorskur, slægður 18.7.24 329,49 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.7.24 315,52 kr/kg
Ýsa, slægð 19.7.24 231,85 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.7.24 159,32 kr/kg
Ufsi, slægður 19.7.24 15,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 19.7.24 190,37 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.7.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng
Þorskur 16 kg
Steinbítur 13 kg
Samtals 29 kg
20.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 319 kg
Samtals 319 kg
20.7.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng
Þorskur 261 kg
Samtals 261 kg
20.7.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng
Þorskur 259 kg
Ýsa 16 kg
Ufsi 10 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 289 kg
20.7.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 389 kg
Samtals 389 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.7.24 496,50 kr/kg
Þorskur, slægður 18.7.24 329,49 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.7.24 315,52 kr/kg
Ýsa, slægð 19.7.24 231,85 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.7.24 159,32 kr/kg
Ufsi, slægður 19.7.24 15,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 19.7.24 190,37 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.7.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng
Þorskur 16 kg
Steinbítur 13 kg
Samtals 29 kg
20.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 319 kg
Samtals 319 kg
20.7.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng
Þorskur 261 kg
Samtals 261 kg
20.7.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng
Þorskur 259 kg
Ýsa 16 kg
Ufsi 10 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 289 kg
20.7.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 389 kg
Samtals 389 kg

Skoða allar landanir »