Fá lífræna vottun á lax

Lífræn vottun fyrir laxeldi Fiskeldis Austfjarða í sjókvíum á Austfjörðum …
Lífræn vottun fyrir laxeldi Fiskeldis Austfjarða í sjókvíum á Austfjörðum skapar fyrirtækinu ný sóknarfæri á markaði í Evrópu. mbl.is/Þorgeir

Fiskeldi Austfjarða hefur fengið lífræna vottun samkvæmt reglugerð Evrópusambandsins. Tryggir þetta fyrirtækinu eftirsóttan markað fyrir hágæða laxaafurðir í Evrópu.

Aðeins fjögur önnur fyrirtæki í heiminum standast þessa vottun enda gilda um hana afar ströng skilyrði, að sögn Jónatans Þórðarsonar, þróunarstjóra Fiskeldis Austfjarða. Þannig má ekki nota lyf eða önnur efni og aðeins hágæða fóður og aðrar vistvænar aðferðir við eldi laxins. Sem dæmi má nefna að litarefni fóðursins er framleitt úr brúnþörungum og er það jafnframt afar öflugt andoxunarefni úr náttúrunni. Raunar eru öll hráefni í fóðrið lífrænt vottuð. Jónatan segir að vissulega sé meiru til kostað en í hefðbundnu sjókvíaeldi en á móti fáist mun hærra verð fyrir afurðirnar.

Allt selt fyrirfram

Fiskeldi Austfjarða selur megnið af framleiðslu sinni til verslana Whole Foods-sælkerakeðjunnar í Bandaríkjunum. Það er gert með samningum til langs tíma þar sem verðið er ákveðið fyrirfram. Tekur söluverðið því ekki þeim miklu sveiflum sem verið hafa á heimsmarkaðsverði á laxi undanfarin misseri. Jónatan segir að kröfur í lífrænni vottun ESB séu svipaðar og þær kröfur sem Whole Foods gerir en þó ekki eins. Segir hann að vottunin skapi tækifæri fyrir fyrirtækið í Evrópu og víkki þannig markaðssvæðið út. Þar sem svo lítið framboð sé á lífrænt vottuðum laxaafurðum og varan eftirsótt vegna gæðanna sé hægt að selja laxinn fyrirfram á góðu verði. Það hafi þegar verið gert, bæði til Evrópu og Japan, auk Bandaríkjanna.

Vottunin nær til sjókvíaeldis Fiskeldis Austfjarða í Berufirði og Fáskrúðsfirði og seiðastöðvarinnar Rifóss í Kelduhverfi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 680 kg
Samtals 680 kg
24.7.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.038 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.046 kg
24.7.24 Kristinn ÞH 163 Handfæri
Þorskur 1.519 kg
Ufsi 47 kg
Samtals 1.566 kg
24.7.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 668 kg
Samtals 1.931 kg
24.7.24 Vonin NS 41 Handfæri
Ufsi 511 kg
Þorskur 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 566 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 680 kg
Samtals 680 kg
24.7.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.038 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.046 kg
24.7.24 Kristinn ÞH 163 Handfæri
Þorskur 1.519 kg
Ufsi 47 kg
Samtals 1.566 kg
24.7.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 668 kg
Samtals 1.931 kg
24.7.24 Vonin NS 41 Handfæri
Ufsi 511 kg
Þorskur 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 566 kg

Skoða allar landanir »