Útgerðarfélagið Brim hf. hagnaðist um 21,5 milljónir evra (3,5 ma.kr.) á fyrstu níu mánuðum ársins. Þetta kemur fram í uppgjöri félagsins sem birt var í dag.
Rekstrartekjur samstæðunnar fyrstu níu mánuði ársins námu 213 milljónum evra (34,7 mö.kr.) á tímabilinu og jukust um 25% frá sama tímabili árið áður. Í tilkynningu frá félaginu segir að aukninguna megi fyrst og fremst rekja til þess að sölufélög í Asíu eru nú hluti af samstæðunni en þau voru áður rekin í öðru félagi. Án þeirra hefðu rekstrartekjur verið 143 milljónir evra, um 17% minni en í fyrra.
Þrátt fyrir það dróst hagnaður samstæðunnar saman um fjórðung frá sama tímabili í fyrra, þegar hann var 28,5 milljónir evra.
Eigið fé jókst um 4% á milli ára á milli ára og var 330 milljónir evra (54 ma.kr.) við lok ársfjórðungsins, þ.e. 30. september 2020.
„Þrátt fyrir áframhaldandi neikvæð áhrif Covid-heimsfaraldursins á aðstæður rekstrar og á markaði hefur starfsfólki Brims með samstilltu átaki tekist vel til við rekstur veiða, vinnslu og markaðssetningar við þessar krefjandi aðstæður.
Endurnýjun fiskiðjuvers á Norðurgarði er nú langt komin, veiði bolfisks hefur gengið þokkalega og verið áfallalaus. Vertíðir uppsjávarfisks í sumar og á haustmánuðum gengu einnig vel. Því má vel segja að niðurstaða uppgjörs Brims á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 verði að teljast vel ásættanleg,“ er haft eftir Kristjáni Þ. Davíðssyni, stjórnarformanni Brims, í tilkynningu.
Hann mun kynna uppgjörið á fjarfundi föstudaginn 20. nóvember klukkan 8:30, en hægt er að sækja um aðgang í gegnum netfangið kynning@brim.is.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 9.2.25 | 623,92 kr/kg |
Þorskur, slægður | 9.2.25 | 790,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 9.2.25 | 455,61 kr/kg |
Ýsa, slægð | 9.2.25 | 411,58 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 9.2.25 | 245,09 kr/kg |
Ufsi, slægður | 7.2.25 | 303,57 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Gullkarfi | 9.2.25 | 380,63 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
8.2.25 Hafdís SK 4 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 1.528 kg |
Skarkoli | 1.359 kg |
Sandkoli | 735 kg |
Steinbítur | 105 kg |
Grásleppa | 30 kg |
Ýsa | 25 kg |
Samtals | 3.782 kg |
8.2.25 Auður Vésteins SU 88 Lína | |
---|---|
Langa | 75 kg |
Steinbítur | 47 kg |
Ýsa | 31 kg |
Þorskur | 28 kg |
Samtals | 181 kg |
8.2.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Þorskur | 460 kg |
Langa | 172 kg |
Ýsa | 93 kg |
Steinbítur | 43 kg |
Keila | 7 kg |
Samtals | 775 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 9.2.25 | 623,92 kr/kg |
Þorskur, slægður | 9.2.25 | 790,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 9.2.25 | 455,61 kr/kg |
Ýsa, slægð | 9.2.25 | 411,58 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 9.2.25 | 245,09 kr/kg |
Ufsi, slægður | 7.2.25 | 303,57 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Gullkarfi | 9.2.25 | 380,63 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
8.2.25 Hafdís SK 4 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 1.528 kg |
Skarkoli | 1.359 kg |
Sandkoli | 735 kg |
Steinbítur | 105 kg |
Grásleppa | 30 kg |
Ýsa | 25 kg |
Samtals | 3.782 kg |
8.2.25 Auður Vésteins SU 88 Lína | |
---|---|
Langa | 75 kg |
Steinbítur | 47 kg |
Ýsa | 31 kg |
Þorskur | 28 kg |
Samtals | 181 kg |
8.2.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Þorskur | 460 kg |
Langa | 172 kg |
Ýsa | 93 kg |
Steinbítur | 43 kg |
Keila | 7 kg |
Samtals | 775 kg |