Norska fjárfestingafélagið Måsøval Eiendom AS hefur gert samning við norsku samsteypuna Midt-Norsk Havbruk AS um kaup á öllum hlutum þess síðarnefnda eða 55,6% í Ice Fish Farm AS sem er eignarhaldsfélag Fiskeldis Austfjarða. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Måsøval.
Måsøval mun þannig fara með ráðandi hluti í tveimur fiskeldisfyrirtækjum á Austfjörðum, en fyrirtækið á fyrir 53,5% hlut í Löxum fiskeldi ehf. Fiskeldi Austfjarða og Laxar hafa þegar hafið samstarf og standa saman að laxaslátrun hjá Búlandstindi á Djúpavogi.
Samhliða kaupunum mun Måsøval selja Midt-Norsk Havbruk 12,19% hlut sinn í norska eldisfyrirtækinu Norway Royal Salmon AS, en fjárfestingafélagið tók þátt í stofnun Norwegian Royal Salmon árið 1992 og kveðst í tilkynningunni hefja nýjan kafla í sögu félagsins með viðskiptunum.
„Måsøval sá fram á tækifæri til að kaupa þennan hlut í Ice Fish Farm AS, það var tækifæri til þess að styrkja rekstur okkar og fjárfestingar á Íslandi með slíkum hætti að við gátum ekki hafnað því,“ segir í tilkynningunni og er vísað til þess að Fiskeldi Austfjarða hafi útgefin leyfi fyrir framleiðslu sem nemur 20.800 tonnum á Austfjörðum og að félagið hafi sótt um frekari heimildir sem nema 16.800 tonnum. Gert er ráð fyrir að leitað verði leiða til að efla samstarfið við Laxa fiskeldi enn frekar.
Laxar fiskeldi hefur stefnt að um 16 þúsund tonna eldi í Reyðarfirði og mun samanlögð framleiðsla fyrirtækjanna tveggja, fái þau öll tilskilin leyfi, geta orðið tæplega 54 þúsund tonn sem er ríflega helmingur þess hámarkslífmassa sem Hafrannsóknastofnun hefur ráðlagt í seinasta áhættumati. Þar er hámarkslífmassi fyrir Ísland allt sagt 106.500 tonn.
Norska fjárfestingafélagið er fjölskyldufyrirtæki sem hefur höfuðstöðvar sínar á Frøya, vestur af Þrándheimi í Noregi. Félagið á að fullu fiskeldisfyrirtækið Måsøval Fiskeoppdrett AS sem mun framleiða um 17 þúsund tonn á þessu ári.