Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hefur ákveðið að bjóða Hafrannsóknastofnun jafnvirði 65 milljóna króna til loðnuleitar og -mælinga í desember og er styrknum ætlað að greiða að fullu fyrir úthald fjögurra mæliskipa í allt að 24 daga, kvörðun þeirra og vinnu sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá SFS.
Í tilkynningunni segir að hætta sé á því að mælingar verði „ónógar til þess að unnt sé að ráðleggja veiðar á loðnu“ í leiðangri Hafrannsóknastofnunar í janúar 2021, þar sem „tímabil vetrarmælinga er jafnan stutt og á tíma þegar veður eru válynd.“ Þá segir jafnframt þekkt að loðnan fari hratt yfir og að hegðun hennar sé óútreiknanleg. „Vera kann að hún sé fyrr á ferðinni nú en síðastliðin tvö ár.“
Benda samtökin á að mælingar á loðnustofninum hafa gengið brösuglega á síðustu tveimur árum og að það hafi gert það að verkum að engi loðnuvertíð varð tvö ári í röð, sem hefur ekki gerst frá því að loðnuveiðar hófust við Ísland.
Minnir SFS á leiðangurinn sem farinn var í nóvember hafi skilað sýnum sem gefa til „vísbendingar um góðar göngur kynþroska loðnu í lögsögunni.“ Sá leiðangur var farinn að frumkvæði SFS en í samstarfi við Hafrannsóknastofnun.
„Góð loðnuvertíð getur að líkindum aukið útflutningstekjur um 30 milljarða króna og margföldunaráhrif í hagkerfinu öllu eru að líkindum tvöföld eða þreföld, líkt og með auknum tekjum starfsmanna sjávarútvegsfyrirtækja, sveitarfélaga og þjónustuaðila sjávarútvegs,“ segir í tilkynningunni.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 4.2.25 | 630,73 kr/kg |
Þorskur, slægður | 4.2.25 | 568,55 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 4.2.25 | 436,82 kr/kg |
Ýsa, slægð | 4.2.25 | 344,41 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 4.2.25 | 288,22 kr/kg |
Ufsi, slægður | 4.2.25 | 366,80 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 4.2.25 | 467,05 kr/kg |
4.2.25 Viðey RE 50 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 74.380 kg |
Karfi | 20.193 kg |
Ufsi | 7.923 kg |
Ýsa | 6.514 kg |
Samtals | 109.010 kg |
4.2.25 Skinney SF 20 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 52.647 kg |
Ýsa | 9.894 kg |
Ufsi | 1.797 kg |
Karfi | 491 kg |
Langa | 311 kg |
Hlýri | 230 kg |
Steinbítur | 203 kg |
Keila | 23 kg |
Þykkvalúra | 16 kg |
Skarkoli | 11 kg |
Skötuselur | 8 kg |
Samtals | 65.631 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 4.2.25 | 630,73 kr/kg |
Þorskur, slægður | 4.2.25 | 568,55 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 4.2.25 | 436,82 kr/kg |
Ýsa, slægð | 4.2.25 | 344,41 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 4.2.25 | 288,22 kr/kg |
Ufsi, slægður | 4.2.25 | 366,80 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 4.2.25 | 467,05 kr/kg |
4.2.25 Viðey RE 50 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 74.380 kg |
Karfi | 20.193 kg |
Ufsi | 7.923 kg |
Ýsa | 6.514 kg |
Samtals | 109.010 kg |
4.2.25 Skinney SF 20 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 52.647 kg |
Ýsa | 9.894 kg |
Ufsi | 1.797 kg |
Karfi | 491 kg |
Langa | 311 kg |
Hlýri | 230 kg |
Steinbítur | 203 kg |
Keila | 23 kg |
Þykkvalúra | 16 kg |
Skarkoli | 11 kg |
Skötuselur | 8 kg |
Samtals | 65.631 kg |