Hart er deilt meðal félagsmanna Landssambands smábátaeigenda (LS) um hvort eigi að styðja frumvarp Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegsráðherra, um að koma á kvótakerfi fyrir grásleppuveiðar og ganga ásakanir um sérhagsmunagæslu á víxl.
Stefán Guðmundsson, einn félagsmanna LS, kveðst í pistli sem hefur verið birtur á vef sambandsins ósáttur við framgöngu Þorláks Pálssonar, formanns LS, og Arnar Pálssonar, framkvæmdastjóra LS, í málinu.
Þá telur Stefán að forysta sambandsins hafi gengið of hart fram gegn kvótasetningu með tillit til þess að félagsmenn eru klofnir í afstöðu sinni til málsins og eru formaður og framkvæmdastjóri sakaðir um að reka „grímulausa einstefnupólitík“ í málefnum grásleppuveiða.
Tilefni pistils Stefáns virðist vera pistill sem Þorlákur skrifaði á vef sambandsins þar sem hann hvatti til samstöðu og gagnrýndi félagsmenn fyrir að una ekki niðurstöðu atkvæðagreiðslu á aðalfundi LS 2019.
„Á þeim 35 árum sem LS hefur starfað, er teljandi á fingrum annarrar handar, að einstaka félagsmenn hafi ekki axlað félagslega ábyrgð. Hlaupið undan merkjum eins og sagt er, tekið sérhagsmuni fram yfir heildarhagsmuni. Einkenni slíkra frumhlaupa er að ómerktir finna hljómgrunn fyrir skoðunum sínum hjá einstökum alþingismönnum, jafnvel að ráðherra komi þar nærri,“ skrifar Þorlákur.
Jafnframt sakar formaðurinn ónefnda félagsmenn LS um að hringja í aðra félagsmenn og hræða þá til að styðja frumvarpið með því að telja þá trú um að lokað verði á útflutning til Bandaríkjanna nema kvótasetning fari fram.
„Þorlákur Halldórsson formaður - ég sem félagsmaður; frábið mér slíkan rakalausan þvætting og dylgjur, sem þú setur fram í nýjum pistli á vef LS. Þar leggur þú bæði okkur og ráðherra orð í munn sem fá ekki staðist frekari skoðun. Það setur þig skör neðar í embætti og trúverðugleika. Þú ert sá sem hleypur undan merkjum og veldur allri þeirri sundrung sem þér er tíðrætt um,“ svarar Stefán í sínum pistli.
Stefán viðurkennir fúslega að hafa tekið þátt í að safna undirskriftum við frumvarp sjávarútvegsráðherra. „Þó ekki væri nema bara fyrir þær sakir að fá frumvarpið til efnislegrar umræðu í Alþingi. Án þess kæmumst við hvorki lönd né strönd með einhverja niðurstöðu. Vægt til orða tekið, voru undirtektir framar öllum okkar villtustu vonum og ekki ólíklegt að rúm 80% svarenda hafi stutt við frumvarpið. Skilaboðin skýr: Dagakerfið hefur gengið sér til húðar.“
Stefán bendir á að aðeins hafi munað tveimur atkvæðum á síðasta aðalfundi LS er tekin var afstaða til kvótasetningu í grásleppu. Hins vegar hafi í kjölfarið verið birt færsla á vef sambandsins undir fyrirsögninni „Afgerandi meirihluti félagsmanna á móti aflamarki í grásleppu“.
„Hið rétta var að tveimur atkvæðum munaði í atkvæðagreiðslum. […] Framkvæmdastjórinn tók vel í ábendingu undirritaðs en allt kom fyrir ekki. Engin breyting gerð.“ skrifar Stefán og segir „ítrekað hefur ráðherra sjávarútvegsmála fengið blammeringar frá framkvæmdastjóra og formanni LS í ræðum og riti frá þessum tíma. Á sama tíma hefur formaður atvinnuveganefndar verið hafinn upp til skýjanna. Merkileg pólitík til tveggja ríkisstjórnarflokka og ekki vænleg til árangurs.“
Telur hann töluverðan stuðning við kvótasetningu og vísar til könnun sem framkvæmd var af Gallup meðal þeirra sem höfðu mesta hagsmuni af grásleppuveiðum og stundað þær umfram aðra. Þar hafi komið í ljós 53% stuðningur við frumvarp sjávarútvegsráðherra, að sögn Stefáns.
Þá sakar hann framkvæmdastjóra og formann LS um að „læðast“ inn á aðalfundi svæðafélaga til þess að afla fylgi við afstöðuna gegn frumvarpinu.
„Síðast fórstu bakdyramegin inn hjá hreinræktuðum strandveiðimönnum í Þorlákshöfn. Fyrsta lína í þeirra ályktun aðalfundar var að lýsa andstöðu við aflamark grásleppu. Ekki sérstaklega til að vera á móti þeirri tegund veiðistjórnunar - heldur aðallega til að passa eigin hagsmuni í strandveiðunum og ímynduðum afleiðingum í bátafjölda. Gæta eigin „sérhagsmuna“ allan hringinn og fara gegn okkar hagsmunum í grásleppunni.“
Þá segir Stefán að lokum dapurt að horfa eftir fólki sem hafa sagt skilið við LS að undanförnu og kveðst hann eiga von á frekari úrsögnum vegna „axarskapta“ formannsins og framkvæmdastjórans. „Dreg orðið stórlega í efa að þið séuð vandanum vaxnir í þessu tiltekna máli. Skrif þín bera þess glöggt merki.“