Breyting varð í brúnni hjá Kælismiðjunni Frosti um mánaðamótin en þá tók Guðmundur H. Hannesson við starfi framkvæmdastjóra af Gunnari Larsen sem verið hefur framkvæmdastjóri síðustu 15 ár, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Guðmundur er enginn nýgræðingur og tók þátt í stofnun þess árið 1993. Þá hefur hann frá 2001 stýrt sölu- og tæknideild fyrirtækisins og vann þar áður í uppsetningu búnaðar og þjónustu.
Hluthafar Kælismiðjunnar Frosts eru nítján talsins en hópur starfsmanna á meirihluta í félaginu. Aðrir hluthafar eru fjárfestingafélögin Kaldbakur og KEA. Starfsmenn eru rúmlega 60 talsins. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Akureyri en starfsstöðvar eru í Garðabæ, á Selfossi og í Kolding í Danmörku.
„Okkar stærsti markaður er og verður í sjávarútvegi og hryggjarstykkið er heimamarkaðurinn hér á Íslandi, uppsetning og viðhald frysti- og kælikerfa í vinnslum og skipum. Vöxtur fyrirtækisins hefur verið mestur á erlendum mörkuðum í sölu og uppsetningu frystikerfa, auk þess sem tæknileg ráðgjöf og hönnun kerfa er stöðugt vaxandi þjónustuþáttur. Sú þróun mun halda áfram,“ segir Guðmundur.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 15.1.25 | 451,04 kr/kg |
Þorskur, slægður | 15.1.25 | 618,12 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 15.1.25 | 395,27 kr/kg |
Ýsa, slægð | 15.1.25 | 251,51 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 15.1.25 | 226,39 kr/kg |
Ufsi, slægður | 15.1.25 | 255,74 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.7.23 | 10,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 14.1.25 | 21,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 15.1.25 | 174,42 kr/kg |
15.1.25 Sæþór EA 101 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 4.621 kg |
Ufsi | 939 kg |
Ýsa | 369 kg |
Karfi | 92 kg |
Samtals | 6.021 kg |
15.1.25 Fjóla SH 7 Plógur | |
---|---|
Breiðasundsskel | 1.110 kg |
Ígulker Bf A | 412 kg |
Samtals | 1.522 kg |
15.1.25 Gullver NS 12 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 12.566 kg |
Ufsi | 3.661 kg |
Arnarfjarðarskel | 3.014 kg |
Karfi | 2.898 kg |
Samtals | 22.139 kg |
15.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Ýsa | 2.709 kg |
Þorskur | 1.177 kg |
Keila | 207 kg |
Hlýri | 104 kg |
Karfi | 45 kg |
Ufsi | 5 kg |
Samtals | 4.247 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 15.1.25 | 451,04 kr/kg |
Þorskur, slægður | 15.1.25 | 618,12 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 15.1.25 | 395,27 kr/kg |
Ýsa, slægð | 15.1.25 | 251,51 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 15.1.25 | 226,39 kr/kg |
Ufsi, slægður | 15.1.25 | 255,74 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.7.23 | 10,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 14.1.25 | 21,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 15.1.25 | 174,42 kr/kg |
15.1.25 Sæþór EA 101 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 4.621 kg |
Ufsi | 939 kg |
Ýsa | 369 kg |
Karfi | 92 kg |
Samtals | 6.021 kg |
15.1.25 Fjóla SH 7 Plógur | |
---|---|
Breiðasundsskel | 1.110 kg |
Ígulker Bf A | 412 kg |
Samtals | 1.522 kg |
15.1.25 Gullver NS 12 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 12.566 kg |
Ufsi | 3.661 kg |
Arnarfjarðarskel | 3.014 kg |
Karfi | 2.898 kg |
Samtals | 22.139 kg |
15.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Ýsa | 2.709 kg |
Þorskur | 1.177 kg |
Keila | 207 kg |
Hlýri | 104 kg |
Karfi | 45 kg |
Ufsi | 5 kg |
Samtals | 4.247 kg |