„Lýsið rennur af mannskapnum“

Veiðin er góð hjá áhöfninni á Baldvini Njálssyni GK og …
Veiðin er góð hjá áhöfninni á Baldvini Njálssyni GK og gengur áhöfninni vel að ná af sér jólaspikinu enda nóg að gera við slíkar aðstæður, segir Arnar Óskarsson skipstjóri. Ljósmynd/Nesfiskur

Íslenski togaraflotinn hélt til veiða á ný um helgina eftir að hafa legið við bryggju frá því fyrir jól. „Það stefndu flestir á Vestfjarðamiðin á nýju ári,“ segir Arnar Óskarsson, skipstjóri á frystitogaranum Baldvini Njálssyni GK, en togarinn var einmitt á þessum slóðum er blaðamaður ræddi við skipstjórann.

Hefðbundið er að halda á þessi mið eftir áramót og ganga veiðar vel hjá áhöfninni á Baldvini Njálssyni. „Þetta er alveg með besta móti miðað við árstíma,“ segir Arnar. Aðallega er verið að veiða ufsa og ýsu að svo komnu og kveðst skipstjórinn hæstánægður með aflann. „Þetta er flottur fiskur. Stór og mikill ufsi og sama með ýsuna. Þetta er allt fiskur af stærstu gerð.“

Veðrið mun betra en á sama tíma í fyrra

Lagt var frá bryggju á sunnudag og stendur til að vera á sjó út janúarmánuð og er gert ráð fyrir að koma til hafnar í Hafnarfirði fyrsta febrúar, að sögn skipstjórans. „Það hefur verið gott veður og góð veiði. Hafísinn er aðeins að trufla okkur, en hann hefur kannski einhver áhrif á það hve veiðin er góð.“

Arnar segir ekki sjálfgefið að veiðar gangi vel í janúar. „Oft er það veðrið sem truflar á þessum árstíma. Það var leiðindaveður þegar við fórum út, en það er búið að vera bara blíðveður hérna núna. Það brælir aðeins á okkur um helgina en annars er ágætis útlit veðurfarslega.“

Má í þessu samhengi rifja upp þá miklu ótíð sem fór yfir landið fyrir ári, bæði í desember 2019 og síðan í ársbyrjun 2020. Beið fjöldi togara af sér hvassviðri í vari oftar en einu sinni, meðal annars í Ísafjarðardjúpi og Húnaflóa.

Reynir á mannskapinn

Spurður um stemninguna um borð í ljósi blíðunnar og þokkalegs fiskirís segir skipstjórinn alla hressa. „Það er létt yfir mannskapnum. Við erum allir að koma úr góðu jólafríi og bara eintóm hamingja,“ svarar hann og hlær.

Þá sé mikill kostur að það sé nóg að gera um borð enda kjöraðstæður til að ná af sér jólaspikinu. „Það bara rennur lýsið af mannskapnum,“ segir Arnar og skellir upp úr. „Ég á nú svolítið erfitt með þetta, ég sit bara hérna í stólnum og stýri skipinu. En það reynir á mannskapinn í svona veiði. Það er kannski bara allt of gott að borða hérna en þeir þurfa nú kraftmikið fæði þessir strákar.“

Almennt nokkuð gott

Það var einnig gott hljóðið í Eiríki Jónssyni, skipstjóra á skuttogaranum Akurey, er blaðamaður náði tali af honum í gær. Þá var togarinn á leið til hafnar í Reykjavík frá Vestfjarðamiðum.

„Þetta hefur gengið alveg þokkalega í þessum fyrsta túr. Það er búið að vera þorskur hérna í Kantinum fyrir vestan. Ágætis veiði í þorski og svo hefur verið svolítið mikið af ýsu líka, reyndar óvenjumikið. Svo hefur verið dálítið af ufsa vestar í Kantinum, mjög stór ufsi,“ segir hann. „Þetta er mjög góður fiskur, bara vertíðarfiskur,“ bætir skipstjórinn við. „Svo voru frystitogararnir hérna í Víkurálnum að moka upp karfa. Það er bara búið að vera almennt nokkuð gott,“ segir Eiríkur.

Eiríkur Jónsson, skipstjóri á Akurey.
Eiríkur Jónsson, skipstjóri á Akurey. Ljósmynd/Brim

„Við erum að fara í land núna og erum bara að taka síðustu sköfuna. Það er kominn ís á slóðina,“ segir hann og útskýrir að hafísinn hafi strítt áhöfninni á þriðjudag og aðfaranótt gærdagsins. Stefnt sé að því að togarinn komi til hafnar í Reykjavík undir morgun í dag og haldi aftur til veiða í kvöld.

„Það er búið að vera ágætis veður, nánast sléttur sjór allan túrinn. Vonandi fer þessi [haf]ís að fara aftur til baka. Hann er svo fljótur að æða yfir þegar hann fer af stað, þessi vestanátt er að stríða okkur í því. Ef við fáum norðaustanátt fer hann aftur,“ segir Eiríkur. Kveðst skipstjórinn vona að það fari að koma vertíð sunnar í byrjun febrúar.

Veiðar byrja einnig vel hjá Akurey.
Veiðar byrja einnig vel hjá Akurey. mbl.is/Þorgeir

Árni rembist við að finna loðnu

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson hefur verið í loðnuleiðangri um Vestfjarðamið á meðan fjögur önnur skip hafa verið að loðnumælingum norður af landinu. Samkvæmt færslu sem birt var á vef Hafrannsóknastofnunar hefur hafísinn á svæðinu hamlað leit Árna Friðrikssonar nokkuð.

Eiríkur segir hins vegar að það hafi fundist loðna í þeim afla sem áhöfnin á Akurey hefur fengið um borð. „Það er einhver loðna í honum. Ég sé nú að hafrannsóknaskipið er eitthvað að rembast við að komast í gegnum þennan ís með misjöfnum árangri.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.10.24 493,17 kr/kg
Þorskur, slægður 18.10.24 570,51 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.10.24 260,59 kr/kg
Ýsa, slægð 18.10.24 222,79 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.10.24 230,23 kr/kg
Ufsi, slægður 18.10.24 232,43 kr/kg
Djúpkarfi 17.10.24 124,11 kr/kg
Gullkarfi 18.10.24 160,20 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 16.10.24 127,54 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.10.24 Særún EA 251 Þorskfisknet
Ýsa 788 kg
Þorskur 570 kg
Ufsi 462 kg
Karfi 25 kg
Samtals 1.845 kg
18.10.24 Geir ÞH 150 Dragnót
Ýsa 10.585 kg
Skarkoli 757 kg
Þorskur 706 kg
Ufsi 210 kg
Langlúra 30 kg
Þykkvalúra 4 kg
Samtals 12.292 kg
18.10.24 Sæþór EA 101 Þorskfisknet
Þorskur 916 kg
Ýsa 823 kg
Ufsi 262 kg
Skarkoli 22 kg
Karfi 3 kg
Samtals 2.026 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.10.24 493,17 kr/kg
Þorskur, slægður 18.10.24 570,51 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.10.24 260,59 kr/kg
Ýsa, slægð 18.10.24 222,79 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.10.24 230,23 kr/kg
Ufsi, slægður 18.10.24 232,43 kr/kg
Djúpkarfi 17.10.24 124,11 kr/kg
Gullkarfi 18.10.24 160,20 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 16.10.24 127,54 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.10.24 Særún EA 251 Þorskfisknet
Ýsa 788 kg
Þorskur 570 kg
Ufsi 462 kg
Karfi 25 kg
Samtals 1.845 kg
18.10.24 Geir ÞH 150 Dragnót
Ýsa 10.585 kg
Skarkoli 757 kg
Þorskur 706 kg
Ufsi 210 kg
Langlúra 30 kg
Þykkvalúra 4 kg
Samtals 12.292 kg
18.10.24 Sæþór EA 101 Þorskfisknet
Þorskur 916 kg
Ýsa 823 kg
Ufsi 262 kg
Skarkoli 22 kg
Karfi 3 kg
Samtals 2.026 kg

Skoða allar landanir »