Leggja til loðnuveiðar upp á 54.200 tonn

Á loðnumiðunum út af Snæfellsnesi.
Á loðnumiðunum út af Snæfellsnesi. mbl.is/RAX

Hafrannsóknastofnun leggur til að ráðlagður loðnuafli á vertíðinni 2020/21 verði rúm 54 þúsund tonn.

Frá þessu er greint á vef stofnunarinnar nú síðdegis.

Ráðgjöfin byggir á meðaltali tveggja mælinga á stærð hrygningarstofns loðnu. Annars vegar á niðurstöðum bergmálsleiðangurs í desember og hins vegar á samanlögðum niðurstöðum tveggja bergmálsleiðangra í janúar.

„Fyrri mælingin í janúar, upp á samtals 144 þúsund tonn, var takmörkuð að því leyti að engar mælingar voru gerðar í Grænlandssundi sökum hafíss. Ennfremur var magn loðnu á austur hluta svæðisins langt undir því sem mældist í desember.

Seinni mælingin í janúar var á afmörkuðu svæði úti fyrir Austfjörðum, og þar mældust um 319 þúsund tonn. Það eru taldar yfirgnæfandi líkur að loðnan austan við land hafi ekki verið hluti af mælingunni fyrr í mánuðinum og því eru þessar tvær mælingar teknar saman og gefa mat upp á 463 þúsund tonn og metnar til jafns á við mælinguna frá desember við mati á stærð stofnsins,“ segir á vef stofnunarinnar.

Óvissan í stofnmati minnkuð

„Ráðgjöf um aflamark byggist á því að 95% líkur séu á að hrygningarstofninn í mars verði yfir 150 000 tonnum að teknu tilliti til afráns. Saman minnka þessar mælingar óvissu í stofnmati og samkvæmt því leiðir þessi mæling til veiðiráðgjafar upp á 54.200 tonn veturinn 2020/21 og kemur í stað fyrri ráðgjafar frá því í desember.

Eins og segir að ofan byggir þessi ráðgjöf meðal annars á niðurstöðum loðnumælinga sem fóru fram í fyrri hluta þessarar viku. Tvö uppsjávarveiðskip, Ásgrímur Halldórsson SF og Polar Amaroq voru þá á vegum Hafrannsóknastofnunar við mælingarnar austan við landið. Jafnframt var Bjarni Ólafsson AK með í að afmarka dreifingu loðnu en auk þess leitaði Venus NS vestan mælingasvæðisins. Var loðnu að sjá við kantinn allt suður að mörkum kald- og hlýsjávar (sjá mynd). Vegna veðurs náðist ekki að skoða dreifingu og magn loðnu norður af þessu svæði.

Stefnt er að því að fara til frekari loðnumælinga eftir helgi. Er þá markmiðið að fara yfir svæðið norðan við yfirferðina sem skipin náðu að ljúka áður en þau þurftu frá að hverfa í vikunni, sem og útbreiðslusvæðið fyrir norðan og norðvestanlands. Vænst er til þess að fá með þessu móti heildarmælingu á stærð stofnsins og verður ráðgjöfin endurskoðuð með tilliti til þess.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 11.2.25 593,92 kr/kg
Þorskur, slægður 11.2.25 546,56 kr/kg
Ýsa, óslægð 11.2.25 381,26 kr/kg
Ýsa, slægð 11.2.25 356,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 11.2.25 226,94 kr/kg
Ufsi, slægður 11.2.25 264,97 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 11.2.25 407,26 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.2.25 Oddur Á Nesi SI 176 Línutrekt
Þorskur 7.044 kg
Ýsa 336 kg
Karfi 94 kg
Hlýri 22 kg
Samtals 7.496 kg
11.2.25 Elva Björg SI 84 Handfæri
Þorskur 414 kg
Samtals 414 kg
11.2.25 Natalia NS 90 Línutrekt
Þorskur 943 kg
Ýsa 331 kg
Steinbítur 43 kg
Keila 2 kg
Samtals 1.319 kg
11.2.25 Von HU 170 Þorskfisknet
Ufsi 715 kg
Þorskur 167 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 885 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 11.2.25 593,92 kr/kg
Þorskur, slægður 11.2.25 546,56 kr/kg
Ýsa, óslægð 11.2.25 381,26 kr/kg
Ýsa, slægð 11.2.25 356,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 11.2.25 226,94 kr/kg
Ufsi, slægður 11.2.25 264,97 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 11.2.25 407,26 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.2.25 Oddur Á Nesi SI 176 Línutrekt
Þorskur 7.044 kg
Ýsa 336 kg
Karfi 94 kg
Hlýri 22 kg
Samtals 7.496 kg
11.2.25 Elva Björg SI 84 Handfæri
Þorskur 414 kg
Samtals 414 kg
11.2.25 Natalia NS 90 Línutrekt
Þorskur 943 kg
Ýsa 331 kg
Steinbítur 43 kg
Keila 2 kg
Samtals 1.319 kg
11.2.25 Von HU 170 Þorskfisknet
Ufsi 715 kg
Þorskur 167 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 885 kg

Skoða allar landanir »