„Auðvitað hefur fólk áhyggjur af þessu“

Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélag Vestfirðinga.
Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélag Vestfirðinga. Ljósmynd/Verkalýðsfélag Vestfirðinga

Fjörtíu og tveir einstaklingar starfa hjá rækjuvinnslunni Kampa á Ísafirði og er fyrirtækið stórt á vestfirskan mælikvarða, en fyrirtækið fékk nýverið samþykkta greiðslustöðvun til þriggja vikna í kjölfar þess að uppgötvaðist mun alvarlegri fjárhagsstaða en gefið var til kynna í bókhaldi félagsins.

„Auðvitað hefur fólk áhyggjur af þessu,“ segir Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga, í samtali við 200 mílur. Hann segir eigendur rækjuvinnslunnar Kampa á Ísafirði hafa fundað með starfsfólki og kynnt fyrir því stöðu mála áður en greiðslustöðvun fékkst.

Fyrirtækið hefur skipt samfélagið á Vestfjörðum miklu máli frá árinu 2009 þegar það var reist á grunni Miðfells sem fór í þrot 2007, að sögn Finnboga. „Þetta er ekki lítið fyrirtæki.“

Verkalýðsfélagið kemur ekki að málum nema félaginu takist ekki að greiða úr sínum málum áður en greiðslustöðvun lýkur, útskýrir hann. „Við verðum bara að bíða og sjá hvort það gangi upp.“

Stórt rækjufélag

Kampi er stórt félag innan rækjugeirans á Íslandi og er um þriðjungur allrar rækju sem unnin er á Íslandi unnin hjá Kampa og helmingur þeirrar rækju sem veidd er á Íslandsmiðum. Stærsti hluti afurðanna er seldur inn á Bretland. Þá hefur fyrirtækið einnig lagt áherslu á fullnýtingu afurða og hefur framleitt mjöl úr rækjuskel á Bolungarvík.

Mikið hefur verið fjárfest í bættum búnaði í vinnslunni á undanförnum árum svo sem í nýjum gufukatli sem gengur fyrir rafmagni í stað þess gamla sem hitaður var með olíu. Einnig var árið 2018 fjárfest í nýju karakerfi frá Skaganum 3X.

Skuldar Byggðastofnun

Byggðastofnun kom að því að koma rekstri Kampa af stað 2009 eftir þrot Miðfells, en stofnunin seldi allan eignarhlut sinn í Kampa árið 2012, að því er fram kemur í svari Aðalsteins Þorsteinssonar, forstjóra Byggðastofnunar, við fyrirspurn 200 mílna um aðkomu stofnunarinnar að félaginu.

„Kampi er með lán hjá Byggðastofnun, en ég hef ekki heimild til að upplýsa um fjárhæð þeirra sbr. 58. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Byggðastofnun hefur verið gert viðvart um stöðu félagsins,“ skrifar Aðalsteinn í tölvupósti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 398,87 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 409,38 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 364,99 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,25 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,73 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 348,92 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Már SU 145 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 117 kg
Samtals 899 kg
16.7.24 Guðrún Petrína HU 107 Handfæri
Þorskur 877 kg
Ýsa 16 kg
Ufsi 10 kg
Steinbítur 5 kg
Samtals 908 kg
16.7.24 Húni BA 707 Grásleppunet
Grásleppa 1.962 kg
Þorskur 67 kg
Samtals 2.029 kg
16.7.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína
Steinbítur 815 kg
Hlýri 126 kg
Ýsa 35 kg
Þorskur 18 kg
Skarkoli 3 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 1.000 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 398,87 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 409,38 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 364,99 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,25 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,73 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 348,92 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Már SU 145 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 117 kg
Samtals 899 kg
16.7.24 Guðrún Petrína HU 107 Handfæri
Þorskur 877 kg
Ýsa 16 kg
Ufsi 10 kg
Steinbítur 5 kg
Samtals 908 kg
16.7.24 Húni BA 707 Grásleppunet
Grásleppa 1.962 kg
Þorskur 67 kg
Samtals 2.029 kg
16.7.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína
Steinbítur 815 kg
Hlýri 126 kg
Ýsa 35 kg
Þorskur 18 kg
Skarkoli 3 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 1.000 kg

Skoða allar landanir »