Skipverjinn um borð í Fjölni GK sem fékk jákvæða svörun í seinni skimun reyndist ekki vera með virkt smit. „Þetta slapp fyrir horn,“ segir Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri útgerðarinnar Vísis hf., í samtali við 200 mílur.
Tekið var sýni um klukkan átta í morgun og bárust niðurstöður rétt fyrir hádegi. „Þetta var staðfesting á því að hann er ekki með virkt smit,“ útskýrir Pétur Hafsteinn sem segir skipið halda til veiða í kvöld. „Það er bara verið að hóa í þá sem voru ekki komnir um borð [áður en atvikið átti sér stað]. Þeir verða komnir á sjó í kvöld.“
Fjölnir GK var kyrrsettur í Grindavík í gærkvöldi eftir að einn skipverji virðist hafa rofið sóttkví og mætt til vinnu skömmu áður en hann fékk jákvæða niðurstöðu úr seinni sýnatöku eftir komuna til landsins. Málið er á borði lögreglu.
Það var mikill léttir að viðkomandi reyndist ekki smitaður, segir Pétur Hafsteinn. Spurður hvort greiðlega hafi gengið að vinna úr stöðunni sem kom upp í gærkvöldi svarar hann því játandi. „Þetta hefur gengið alveg rosalega vel. Við erum með frábært fólk á skrifstofunni, þetta er mikil vinna þar. Þetta hefur tekist vel í sambandi við áhöfnina, menn hafa virt þetta alveg.“
„Við höfum tvisvar þurft að koma skipi í land vegna gruns og einu sinni þurft að fresta brottför aðeins, en þetta hefur allt gengið alveg ótrúlega vel,“ segir hann. „Ég held það sé almennt þannig hjá öllum sjómönnum að þeir geri sig grein fyrir hættunni.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 5.7.24 | 414,88 kr/kg |
Þorskur, slægður | 5.7.24 | 571,95 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 5.7.24 | 388,37 kr/kg |
Ýsa, slægð | 5.7.24 | 149,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 5.7.24 | 225,64 kr/kg |
Ufsi, slægður | 5.7.24 | 282,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 5.7.24 | 333,83 kr/kg |
Litli karfi | 1.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
6.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.765 kg |
Ýsa | 1.415 kg |
Steinbítur | 939 kg |
Langa | 667 kg |
Hlýri | 254 kg |
Keila | 160 kg |
Skarkoli | 54 kg |
Karfi | 51 kg |
Ufsi | 6 kg |
Samtals | 9.311 kg |
6.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 339 kg |
Samtals | 339 kg |
6.7.24 Hávella ÍS 426 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 114 kg |
Samtals | 114 kg |
6.7.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 178 kg |
Samtals | 178 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 5.7.24 | 414,88 kr/kg |
Þorskur, slægður | 5.7.24 | 571,95 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 5.7.24 | 388,37 kr/kg |
Ýsa, slægð | 5.7.24 | 149,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 5.7.24 | 225,64 kr/kg |
Ufsi, slægður | 5.7.24 | 282,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 5.7.24 | 333,83 kr/kg |
Litli karfi | 1.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
6.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.765 kg |
Ýsa | 1.415 kg |
Steinbítur | 939 kg |
Langa | 667 kg |
Hlýri | 254 kg |
Keila | 160 kg |
Skarkoli | 54 kg |
Karfi | 51 kg |
Ufsi | 6 kg |
Samtals | 9.311 kg |
6.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 339 kg |
Samtals | 339 kg |
6.7.24 Hávella ÍS 426 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 114 kg |
Samtals | 114 kg |
6.7.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 178 kg |
Samtals | 178 kg |