Hafrannsóknastofnun hefur hækkað ráðgjöf sína fyrir loðnu á yfirstandandi vertíð úr 61 þúsund tonnum í 127.300 tonn. Það bendir því til að loðnuvertíðin verði gjöfulli en talið var í fyrstu, en stærsta loðnuleiðangri sögunnar lauk á dögunum og tóku átta skip þátt.
Samkvæmt útreikningum 200 mílna ættu íslensk skip að fá um 70 þúsund tonn í sinn hlut af þessari ráðgjöf, í stað um 20 þúsund tonna miðað við fyrri ráðgjöf.
Ráðgjöfin byggist á niðurstöðum tveggja leiðangra sem fóru fram seinni part janúar og gáfu mat á stærð hrygningarstofns loðnu upp á samtals 650 þúsund tonn, að því er segir í tilkynningu á vef Hafrannsóknastofnunar.
Þá segir að „fyrri leiðangurinn fór fram dagana 17. til 20. janúar með þátttöku þriggja skipa fyrir austan land. Við heildarstofnmat var notast við mælingar þessa leiðangurs sem voru sunnan við 65° norður. Seinni leiðangurinn fór fram dagana 26.-30. janúar með þátttöku alls átta skipa og dekkuðu þau Vestfjarða-, Norður- og norðanverð Austurmið.“
Veður og hafís truflaði leit
Fram kemur í tilkynningu stofnunarinnar að fyrri leiðangurinn hafi aðeins náð yfir syðsta hluta útbreiðslusvæðis loðnu fyrir austan land þar sem óveður kom í veg fyrir frekari mælingar norðar.
„Dreifing loðnu ásamt forsendum um göngustefnu og tímasetningar var lögð til grundvallar á ákvörðun um samlagningu mælinganna með þessum hætti. Heildaryfirferð þessara tveggja leiðangra er talin ná yfir allt útbreiðslusvæði hrygningarloðnu. Það gilti ekki um mælingar í desember og fyrri hluta janúar og því voru niðurstöður þeirra ekki notaðar í þessari lokaráðgjöf.“
„Ráðgjöf um aflamark byggist á því að 95% líkur séu á að hrygningarstofninn í mars verði yfir 150 000 tonnum að teknu tilliti til afráns. Samkvæmt því leiðir þessi heildarmæling til veiðiráðgjafar upp á 127.300 tonn veturinn 2020/21 og kemur í stað fyrri ráðgjafar frá því í janúar.“
Dreifing loðnu í leiðangrinum 26.-30. janúar 2021.
Mynd/Hafrannsóknastofnun