Forsvarsmenn smábátafélagsins Hrollaugs á Höfn í Hornafirði rituðu Arthuri Bogasyni, formanni Landssambands smábátaeigenda, bréf á dögunum þar sem þeir lýsa yfir trú sinni á Arthuri sem formanni LS.
Í bréfinu sem hefur nú verið birt á síðu félagsins segir að fundað hafi verið um mögulega inngöngu Hrollaugs í LS að nýju. Ekki kemur fram í bréfinu hvort Hrollaugur hyggist sækjast aftur eftir aðild í LS en þó segir að flestir hafi verið jákvæðir fyrir möguleikanum.
Smábátafélagið Hrollaugur sagði sig úr LS árið 2018, m.a. vegna óánægju með baráttuleysi fyrir stöðu smábátasjómanna í kjölfar breytinga á strandveiðifyrirkomulaginu.
„Allflestir tóku nokkuð vel undir þá hugmynd en eru samt tvístígandi því það LS sem við yfirgáfum á sínum tíma var orðið grútmáttlaust skriffinskufélag sem sannarlega fylgdi ekki sinni eigin lýðræðislega kjörnu stefnu og hvað þá að raunverulegur baráttuandi til handa smábátum hafi svifið þar yfir vötnunum,“ segir í bréfi Hrollaugs til Arthurs. Undir bréfið ritar Vigfús Ásbjörnsson, formaður Hrollaugs.
Í bréfinu eru útlistaðar hugmyndir um hvernig LS geti náð þeim styrk og áheyrn sem Hrollaugur telur að félagið eigi að hafa. „Leiftursóknin sem LS þarf að standa fyrir verður að vera svo öflug að enginn fái við hana ráðið sem vilja okkur smábátasjómenn feiga,“ segir í bréfinu.
Í samtali við 200 mílur segir Arthur Bogason að hann hafi verið langt kominn með að svara bréfi Hrollaugs, þegar það var birt á netinu, á þá leið að hann hvetji Hrollaugsmenn til þess að ganga aftur í LS enda séu kraftar smábátasjómanna betur nýttir sameinaðir.
Bréfið má í heild sinni lesa hér:
Sælir félagar. Vegna margra fyrirspurna um það hvort við Hrollausmenn förum ekki að ganga aftur í Ls langar okkur að...
Posted by Smábátafélagið Hrollaugur Höfn on Wednesday, 10 February 2021
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 6.2.25 | 634,92 kr/kg |
Þorskur, slægður | 6.2.25 | 439,80 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 6.2.25 | 492,60 kr/kg |
Ýsa, slægð | 6.2.25 | 425,42 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 6.2.25 | 252,35 kr/kg |
Ufsi, slægður | 6.2.25 | 295,91 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 6.2.25 | 395,39 kr/kg |
7.2.25 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 914 kg |
Ufsi | 44 kg |
Grásleppa | 31 kg |
Skarkoli | 20 kg |
Ýsa | 12 kg |
Karfi | 5 kg |
Samtals | 1.026 kg |
7.2.25 Fjóla SH 7 Plógur | |
---|---|
Ígulker Bf B | 1.432 kg |
Samtals | 1.432 kg |
6.2.25 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 541 kg |
Steinbítur | 201 kg |
Ýsa | 77 kg |
Þorskur | 73 kg |
Sandkoli | 66 kg |
Þykkvalúra | 18 kg |
Samtals | 976 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 6.2.25 | 634,92 kr/kg |
Þorskur, slægður | 6.2.25 | 439,80 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 6.2.25 | 492,60 kr/kg |
Ýsa, slægð | 6.2.25 | 425,42 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 6.2.25 | 252,35 kr/kg |
Ufsi, slægður | 6.2.25 | 295,91 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 6.2.25 | 395,39 kr/kg |
7.2.25 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 914 kg |
Ufsi | 44 kg |
Grásleppa | 31 kg |
Skarkoli | 20 kg |
Ýsa | 12 kg |
Karfi | 5 kg |
Samtals | 1.026 kg |
7.2.25 Fjóla SH 7 Plógur | |
---|---|
Ígulker Bf B | 1.432 kg |
Samtals | 1.432 kg |
6.2.25 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 541 kg |
Steinbítur | 201 kg |
Ýsa | 77 kg |
Þorskur | 73 kg |
Sandkoli | 66 kg |
Þykkvalúra | 18 kg |
Samtals | 976 kg |