„Þetta staðfestir í raun það sem við höfum sagt. Þarna var byggður til heill Kveiksþáttur um þetta mál. Það er er búið að berja á Samherja og fólki í Samherja af hálfu, ja ég veit ekki hvort fyrirtækið heitir RÚV/Stundin eða Stundin/RÚV ohf. Þau hafa barið á viðskiptabönkum Samherja með fullyrðingum sem við vissum allan tímann að væru rangar,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja í samtali við 200 mílur og bætir því við að gott sé að þessi niðurstaða sé komin fram í dag.
Saksóknari í Noregi hefur látið mál og rannsókn á hendur norska viðskiptabankanum DNB niður falla vegna viðskipta sinna við Samherja og meintra brota þeirra í Namibíu. Var bankinn grunaður um að eiga aðild að peningaþvætti ásamt Samherja. Rannsókn efnahagsbrotadeildar lögreglunnar í Ósló leiddi ekki neitt í ljós sem þótti tilefni til ákæru og var því fallið frá málinu.
Í tilkynningu á vef Samherja í kjölfar tilkynningar DNB banka þess efnis að fallið hafi verið frá máli á hendur þeim segir að Samherji fangi niðurstöðunni og þær greiðslur sem gerðar voru tortryggilegar í umfjöllun Stundarinnar og Ríkisútvarpsins um viðskipti félagsins í Namibíu hafa verið til þess að tryggja skipverjum greiðslur.
„Samherji fagnar þessari niðurstöðu enda hefur félagið ávallt haldið því fram að ásakanir vegna viðskipti tengdra félaga við DNB hafi verið tilhæfulausar. Mjög veigamikill þáttur í umfjöllun Ríkisútvarpsins um útgerðina í Namibíu varðaði umrædd viðskipti við DNB bankann. Þar voru upplýsingar um áreiðanleikakönnun bankans slitnar úr samhengi og lánveitingar, sem voru framkvæmdar til að tryggja að greiðslur bærust skipverjum á réttum tíma, gerðar tortryggilegar. Mjög alvarlegar ásakanir voru settar fram um þessi viðskipti, meðal annars að þau hafi falið í sér peningaþvætti,“ segir í tilkynningu Samherja.
Þorsteinn Már segist ekki óttast aðrar rannsóknir sem nú fara fram, bæði í Namibíu og á Íslandi.
„Þetta er að hluta til unnið eins og Seðlabankamálið, fyrst og fremst af hálfu RÚV gert til að skaða fyrirtæki og fólk. Ég veit að þegar okkur tekst að far að verja okkur á þeim stöðum sem málin eru til rannsóknar þá óttast ég ekki niðurstöðuna í því frekar en í þessu máli,“ segir Þorsteinn Már.
Þorsteinn sagði engan starfsmann Samherja enn hafa verið ákærðan í Namibíu. Þorsteinn Már ásamt fimm öðrum starfsmönnum Samherja hafa réttarstöðu sakbornings við rannsókn á Íslandi.