Óðinsbryggjan verður endurbyggð

Óðinsbryggja er illa farin eins og sjá má á myndinni. …
Óðinsbryggja er illa farin eins og sjá má á myndinni. Hún verður rifin áður en endurbyggingin hefst. mbl.is/sisi

Faxaflóahafnir ætla að endurbyggja Verbúðarbryggjuna í Gömlu höfninni í Reykjavík á þessu ári. Hún hefur verið dæmd ónýt og verður rifin.

Bryggjan er fyrir framan Sjóminjasafnið og hafa varðskipið Óðinn og dráttarbáturinn Magni gamli legið við hana undanfarin ár. Bryggja þessi hefur stundum verið nefnd Óðinsbryggja.

Hönnun bryggjunnar er langt komin hjá verkfræðistofunni Eflu og er reiknað með að bjóða framkvæmdina sjálfa út í vor, að því er Inga Rut Hjaltadóttir, forstöðumaður tæknideildar Faxaflóahafna, upplýsti Morgunblaðið um. Um síðustu helgi var auglýst útboð á söguðum harðvið og staurum í bryggjuna og verða tilboð opnuð 1. mars.

Bryggjan verður 60 metra löng og sjö metra breið timburbryggja á timburstaurum. Hún verður endurbyggð með svipuðu formi og nú er.

Kostar 120 milljónir

Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdirnar er um 120 milljónir króna. Þar af eru efniskaup um 45 milljónir. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist á öðrum ársfjórðungi. Reiknað er með að verkið taki 4-6 mánuði, segir Inga Rut.

Í Vesturhöfn Gömlu hafnarinnar í Reykjavík eru fjórar timburbryggjur. Sú ysta, Síldarbryggjan, hefur verið breikkuð og endurbætt á síðustu áratugum og telst í þokkalegu ástandi. Innri bryggjurnar þrjár, við Kaffivagninn, kallast einu nafni Verbúðabryggjur. Ytri bryggjurnar tvær voru opnaðar, tekinn af þeim mesti hallinn og þær endurnýjaðar upp úr 1990.

Innsta bryggjan við Sjóminjasafnið hefur lítið viðhald fengið síðustu áratugi. Hún var dæmd ónýt árið 2018 og ákvað stjórn Faxaflóahafna að láta vinna að hönnun nýrrar bryggju og nú er komið að framkvæmdum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.1.25 612,65 kr/kg
Þorskur, slægður 30.1.25 740,19 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.1.25 405,82 kr/kg
Ýsa, slægð 30.1.25 312,87 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.1.25 226,54 kr/kg
Ufsi, slægður 30.1.25 286,62 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 10,67 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 30.1.25 251,67 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.1.25 Áskell ÞH 48 Botnvarpa
Þorskur 13.092 kg
Ýsa 783 kg
Samtals 13.875 kg
31.1.25 Cuxhaven NC 100 Botnvarpa
Karfi 5.105 kg
Samtals 5.105 kg
30.1.25 Erling KE 140 Þorskfisknet
Þorskur 3.491 kg
Samtals 3.491 kg
30.1.25 Bára SH 27 Plógur
Sæbjúga Bf D 6.326 kg
Samtals 6.326 kg
30.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 2.247 kg
Þorskur 802 kg
Hlýri 254 kg
Keila 68 kg
Steinbítur 9 kg
Karfi 4 kg
Samtals 3.384 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.1.25 612,65 kr/kg
Þorskur, slægður 30.1.25 740,19 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.1.25 405,82 kr/kg
Ýsa, slægð 30.1.25 312,87 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.1.25 226,54 kr/kg
Ufsi, slægður 30.1.25 286,62 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 10,67 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 30.1.25 251,67 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.1.25 Áskell ÞH 48 Botnvarpa
Þorskur 13.092 kg
Ýsa 783 kg
Samtals 13.875 kg
31.1.25 Cuxhaven NC 100 Botnvarpa
Karfi 5.105 kg
Samtals 5.105 kg
30.1.25 Erling KE 140 Þorskfisknet
Þorskur 3.491 kg
Samtals 3.491 kg
30.1.25 Bára SH 27 Plógur
Sæbjúga Bf D 6.326 kg
Samtals 6.326 kg
30.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 2.247 kg
Þorskur 802 kg
Hlýri 254 kg
Keila 68 kg
Steinbítur 9 kg
Karfi 4 kg
Samtals 3.384 kg

Skoða allar landanir »