Mun betur fór en á horfðist í sjávarútvegi á árinu 2020 en fyrstu hagspár sem birtar voru eftir að faraldurinn skall á gerðu ráð fyrir einum mesta samdrætti í sjávarútvegi sem orðið hefur í nær fjóra áratugi á árinu 2020.
Þetta kemur fram í umfjöllun Radarsins.
Þar er vísað til þess að útflutningsverðmæti sjávarafurða námu 270 milljörðum króna í fyrra og jókst um 10 milljarða frá 2019. „Jafngildir það aukningu upp á tæp 4% í krónum talið. Aukningin skrifast öll á þá lækkun sem varð á gengi krónunnar, enda dróst útflutningsverðmæti sjávarafurða saman um tæp 7% í erlendri mynt. Samdráttinn má helst rekja til rúmlega 4% samdráttar í útfluttu magni.“
Þrátt fyrir samdrátt í magni er ljóst að sjávarútvegurinn stóð fyrir sínu í öflun gjaldeyris og samanlögð hlutdeild sjávar- og eldisafurða af gjaldeyristekjum þjóðarbúsins 30% á árinu 2020.
Kórónuveirufaraldurinn hafði þó veruleg áhrif á markaði í fyrra og voru verð á sjávarafurðum að jafnaði ríflega 2% lægra á árinu 2020 en 2019 mælt í erlendri mynt. „Sú lækkun er vissulega ekki ýkja mikil þegar litið er á árið í heild, en áður en COVID-19 skall á hafði verið talsverð verðhækkun sem hefur áhrif á meðalverð á árinu. Sveiflur innan ársins voru því mun meiri. […] Í janúar 2020 sýndi tólf mánaða taktur verðvísitölunnar tæplega 9% hækkun á sjávarafurðum í erlendri mynt, en í desember var hann komin niður í tæp 8% lækkun.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 2.7.24 | 409,00 kr/kg |
Þorskur, slægður | 2.7.24 | 485,84 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 2.7.24 | 415,58 kr/kg |
Ýsa, slægð | 2.7.24 | 435,77 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 2.7.24 | 161,52 kr/kg |
Ufsi, slægður | 1.7.24 | 199,56 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 2.7.24 | 320,63 kr/kg |
Litli karfi | 1.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
2.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 867 kg |
Ufsi | 15 kg |
Ýsa | 5 kg |
Karfi | 3 kg |
Samtals | 890 kg |
2.7.24 Mar AK 74 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 306 kg |
Samtals | 306 kg |
2.7.24 Emilía AK 57 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 626 kg |
Ufsi | 4 kg |
Ýsa | 2 kg |
Karfi | 1 kg |
Samtals | 633 kg |
2.7.24 Fagra Fríða AK 44 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 213 kg |
Samtals | 213 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 2.7.24 | 409,00 kr/kg |
Þorskur, slægður | 2.7.24 | 485,84 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 2.7.24 | 415,58 kr/kg |
Ýsa, slægð | 2.7.24 | 435,77 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 2.7.24 | 161,52 kr/kg |
Ufsi, slægður | 1.7.24 | 199,56 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 2.7.24 | 320,63 kr/kg |
Litli karfi | 1.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
2.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 867 kg |
Ufsi | 15 kg |
Ýsa | 5 kg |
Karfi | 3 kg |
Samtals | 890 kg |
2.7.24 Mar AK 74 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 306 kg |
Samtals | 306 kg |
2.7.24 Emilía AK 57 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 626 kg |
Ufsi | 4 kg |
Ýsa | 2 kg |
Karfi | 1 kg |
Samtals | 633 kg |
2.7.24 Fagra Fríða AK 44 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 213 kg |
Samtals | 213 kg |