Átta vilja smíða nýjan Bjarna Sæmundsson

Bjarni Sæmundsson við bryggju við höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði. skipið …
Bjarni Sæmundsson við bryggju við höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði. skipið er komið ti ára sinna og vilja átta bjóða í smíði nýs skips. mbl.is/sisi

Átta skipasmíðastöðvar hafa lýst áhuga á að taka þátt í útboði vegna smíði á nýju rannsóknaskipi sem mun leysa Bjarna Sæmundsson, sem nú er orðinn 51 árs, af hólmi. Þetta er niðurstaða forútboðs sem Ríkiskaup opnaði 5. maí og gerði Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, grein fyrir málinu á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun, að því er fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Þar segir að gert sé ráð fyrir að samið verði um smíði skipsins fyrir 1. nóvember og að smíði geti hafist í kjölfarið, en smíðatíminn er áætlaður tvö ár og kemur skipið líklegast til landsins á síðari hluta 2023.

„Gert er ráð fyrir svokölluðu samkeppnisútboði sem gefur möguleika á viðræðum við boðendur og aðlögun vegna tilboða. Samhliða því að unnið er að hæfnismati á skipasmíðastöðvunum. Þegar þeirri vinnu verður lokið mun útboð um smíði skipsins fara fram og þær stöðvar sem standast hæfnismat fá að taka þátt í því útboði,“ segir í tilkynningunni.

Útboðsferlið hefst fyrsta júní með útsendingu gagna og verður opnað fyrir útboð um tveimur mánuðum síðar. Þá er áætlað að það taki um tvo til þrjá mánuði að vinna úr þeim tilboðum sem berast í verkið. Að því loknu verður gengið til samninga um smíði skipsins.

„Við hönnun á nýju rannsóknaskipi fyrir Hafrannsóknastofnun hefur verið horft til ýmissa leiða til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Hægt verður að brenna lífdísil (t.d. repjuolíu) og er þeim möguleika haldið opnum í hönnun að gera ráð fyrir plássi fyrir búnaði sem þarf til ef hentugar vélar til brennslu metanóls verði komnar í framleiðslu á smíðatímanum. Innan skips verður leitað allra leiða til að spara orku. Til lýsingar er notuð LED tækni, spilbúnaður skipsins verður rafdrifinn, til upphitunar verður notuð afgangsorka frá kælivatni aðalvéla og vistarverum skipt upp þannig að einungis verði loftræstar þær sem eru í notkun hverju sinni. Skipið verður við landrafmagn og gert er ráð fyrir að settir verði upp varmaskiptar í heimahöfn skipsins þannig að skipið verði hitað upp með vatni frá hitaveitu,“ segir í tilkynningunni á vef stjórnarráðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 637,25 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 396,55 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,63 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 633,84 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 7.778 kg
Langa 1.034 kg
Ýsa 469 kg
Hlýri 434 kg
Keila 426 kg
Steinbítur 275 kg
Ufsi 164 kg
Karfi 22 kg
Samtals 10.602 kg
24.7.24 Sigrún EA 52 Handfæri
Ufsi 196 kg
Þorskur 143 kg
Samtals 339 kg
24.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 1.630 kg
Ufsi 17 kg
Samtals 1.647 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 637,25 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 396,55 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,63 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 633,84 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 7.778 kg
Langa 1.034 kg
Ýsa 469 kg
Hlýri 434 kg
Keila 426 kg
Steinbítur 275 kg
Ufsi 164 kg
Karfi 22 kg
Samtals 10.602 kg
24.7.24 Sigrún EA 52 Handfæri
Ufsi 196 kg
Þorskur 143 kg
Samtals 339 kg
24.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 1.630 kg
Ufsi 17 kg
Samtals 1.647 kg

Skoða allar landanir »