Fyrstu skipin á makríl fyrir mánaðamót

Ákvörðun um makrólkvóta ársisn liggur ekki fyrir e íslensku skipin …
Ákvörðun um makrólkvóta ársisn liggur ekki fyrir e íslensku skipin fara líklega að leita makríls í vikunni. mbl.is/Árni Sæberg

Líklegt er að fyrstu íslensku uppsjávarskipin byrji að svipast um eftir makríl fyrir Suðurlandi í þessari viku. Fleiri bætist síðan við á makrílveiðum eftir sjómannadag og fram eftir júnímánuði. Ákvörðun íslenskra stjórnvalda um makrílkvóta ársins liggur ekki fyrir, en gert er ráð fyrir að reglugerð um makrílveiðar í ár verði gefin út fyrir lok þessa mánaðar, samkvæmt upplýsingum úr sjávarútvegsráðuneytinu.

Auk Íslands eiga Færeyingar eftir að tilkynna Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðinu, NEAFC, um sínar fyrirætlanir og Norðmenn hafa tilkynnt um upphafskvóta upp á 104.998 tonn. Aðrar tilkynningar til NEAFC eru frá Bretum um 222.288 tonn, frá Evrópusambandinu um 200.179 tonn, frá Rússlandi um 120.423 tonn og frá Grænlandi upp á 60.000 tonn, samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu.

Veiðar umfram ráðgjöf

Þegar hefur því verið tilkynnt um að fyrrnefnd strandríki hyggist veiða samtals um 708 þúsund tonn. Tvö strandríki hafa ekki gefið upp sína viðmiðun, en í fyrra veiddu íslensk skip um 150 þúsund tonn af makríl. Alþjóðahafrannsóknaráðið, ICES, lagði til í lok síðasta árs að aflinn 2021 færi ekki yfir 852 þúsund tonn og var um 8% samdrátt í ráðgjöf að ræða frá árinu á undan. Ráðgjöf fyrir síðasta ár, 2020, var 922 þúsund tonn, en afli ársins varð hins vegar um 1,1 milljón tonn, eða um 18% umfram ráðgjöf.

Ekki er í gildi samkomulag milli þeirra þjóða sem stunda veiðar úr makrílstofninum um skiptingu aflahlutdeildar og hver þjóð setur sér aflamark, sem hefur haft þær afleiðingar að veiðar hafa verið umfram ráðgjöf ICES. Þjóðirnar eru sammála um að fylgja ráðgjöf ársins um 852 þúsund tonn, en eins og áður er langt í frá að menn séu sammála um skiptinguna.

Árin 2014-2020 var í gildi samkomulag Norðmanna, Færeyinga og Evrópusambandsins um makrílveiðar, en það rann út í fyrra. Þá hefur sú stóra breyting orðið frá síðasta ári að eftir Brexit eru Bretar sjálfstætt strandríki og hafa tilkynnt um aflamark fyrir sín skip. Bretar hafa ekki samið um aðgang t.d. Norðmanna og Færeyinga til makrílveiða í breskri lögsögu í ár.

Gætu aukið sinn hlut

Eins og áður sagði hafa Norðmenn tilkynnt um upphafskvóta, en reiknað er með að þeir muni bæta í á næstunni. Samkvæmt fyrrnefndu samkomulagi ESB, Færeyja og Noregs fengu Norðmenn 22,5% af ráðgjöfinni eða 192 þúsund tonn í fyrra. Í Fiskaren í Noregi mátti í vikunni lesa vangaveltur um að þar sem Norðmenn væru nú óbundnir af þessum samningi gætu þeir veitt mun meira við Noreg, Jan Mayen og á fiskverndarsvæðinu við Svalbarða á grundvelli þess hve mikið og hve lengi makríll er á þessum slóðum.

Ann Kristin Westberg, aðalsamningamaður Norðmanna í makrílviðræðum síðustu ára, kynnti í vikunni tvær sviðsmyndir um hlutdeild Norðmanna. Voru þær um 30% eða 35% af heildarráðgjöfinni og færi aflinn upp í tæplega 300 þúsund tonn ef miðað væri við hærri hlutdeildina. Í frétt Fiskaren er einnig velt upp spurningu um hvort norski flotinn myndi ráða við að veiða svo mikið. Einnig um gæði hráefnis og verð fyrir afurðir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.1.25 540,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.1.25 660,38 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.1.25 389,94 kr/kg
Ýsa, slægð 19.1.25 324,15 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.1.25 283,17 kr/kg
Ufsi, slægður 19.1.25 244,63 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 14.1.25 21,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 19.1.25 216,49 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.064 kg
Þorskur 298 kg
Steinbítur 47 kg
Keila 17 kg
Hlýri 15 kg
Samtals 1.441 kg
17.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 8.767 kg
Ýsa 5.091 kg
Steinbítur 294 kg
Langa 219 kg
Keila 78 kg
Karfi 20 kg
Samtals 14.469 kg
17.1.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 10.232 kg
Ýsa 1.981 kg
Langa 354 kg
Karfi 37 kg
Steinbítur 26 kg
Samtals 12.630 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.1.25 540,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.1.25 660,38 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.1.25 389,94 kr/kg
Ýsa, slægð 19.1.25 324,15 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.1.25 283,17 kr/kg
Ufsi, slægður 19.1.25 244,63 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 14.1.25 21,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 19.1.25 216,49 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.064 kg
Þorskur 298 kg
Steinbítur 47 kg
Keila 17 kg
Hlýri 15 kg
Samtals 1.441 kg
17.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 8.767 kg
Ýsa 5.091 kg
Steinbítur 294 kg
Langa 219 kg
Keila 78 kg
Karfi 20 kg
Samtals 14.469 kg
17.1.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 10.232 kg
Ýsa 1.981 kg
Langa 354 kg
Karfi 37 kg
Steinbítur 26 kg
Samtals 12.630 kg

Skoða allar landanir »