Fullreynt að Kristján Þór tryggi 48 daga

Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Lilja Rafney Magnúsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Lagt var upp með í þverpólitískri samstöðu fyrir tveimur árum, að mínu frumkvæði, að gera breytingar á strandveiðikerfinu. Það náðist til eins árs, að gera tilraunabreytingar sem tókust ágætlega. 

Síðan náðist aftur þverpólitísk samstaða, undir minni forystu, um að byggja á því frumvarpi og voru afgreidd varanleg lög og unnið eftir þeim síðasta sumar,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður og formaður atvinnuveganefndar Alþingis, í samtali við 200 mílur. 

Í ljós kom að potturinn dugði ekki til að tryggja öllum strandveiðisjómönnum 48 daga til að róa, sem var útgangspunkturinn í allri löggjöfinni að sögn Lilju Rafneyjar. 

Lilja Rafney lagði á miðvikudaginn fram frumvarp um breytingar á strandveiðikerfinu þannig að 48 veiðidagar verði tryggðir öllum leyfishöfum.

37% aukning fyrstu sjö dagana

Þegar litið er til upphafs strandveiða á yfirstandandi veiðitímabili er ólíklegt að 10.000 tonn muni tryggja veiðar til ágústloka. Afli fyrstu sjö dagana hefur aukist um 37% frá sömu viðmiðun árið 2020 og allt útlit er fyrir að um 700 bátar stundi strandveiðar í ár. Samkvæmt tölum undanfarinna þriggja ára hefur bátum á strandveiðum fjölgað,“ segir í greinargerð frumvarps Lilju Rafneyjar.

„Frá þeim tíma hef ég reynt að tala fyrir því við hæstvirtan [sjávarútvegs]ráðherra. Það hefur ekki náðst niðurstaða í það. Undanfarnar vikur var reynt sérstaklega að fá niðurstöðu í það gagnvart ráðherra. Það tókst ekki,“ segir Lilja Rafney. 

Hún segir frumvarpið sem hún lagði fram vera þrautalendingu hvernig hægt væri að framkvæma breytinguna til bráðabrigða í ár. 

Áhyggjur á meðal sjómanna og fiskvinnslufólks

„Við blasti að sama staða kæmi upp og miklar áhyggjur meðal sjómanna og þeirra sem kaupa fisk af strandveiðisjómönnum af að hafa ekki nægt hráefni til vinnslu í ágúst,“ útskýrir Lilja. 

Hún segist vita að frumvarpið sé seint fram komið, en það hafi verið lagt fram til að ná fram umræðu um málið og vonast til að það verði tekið með inn í þinglokasamninga. 

„Ef það næðist umræða um þetta í þinglokasamningum, að þetta væri brýnt atvinnumál, þá væri þarna mögulegt tækifæri.“

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, lagði í dag við upphaf þingfundar fram tillögu um að frumvarp Lilju Rafneyjar yrði tekið fyrir á þingfundinum með þeim afleiðingum að upplausn myndaðist í þingsal um tíma. Málið var ekki tekið á dagskrá þingsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »