Gísli á leið í land

Gísli V. Jónsson í síðustu sjóferðinni nú í vikunni.
Gísli V. Jónsson í síðustu sjóferðinni nú í vikunni. Ljósmynd/Gunnar Kristjánsson

„Síðustu sjóferðinni fylgja sérstakar tilfinningar,“ segir Gísli Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni GK 7. „Ég er í raun að setja lokapunkt aftan við allt sem hafa verið mín daglegu störf í meira en hálfa öld. Fyrst eftir að fyrir lá að ég kæmi í land í sumar var ég mátulega sáttur. Núna bíð ég hins vegar eftir að túrinn klárist svo ég geti snúið mér að nýjum viðfangsefnum.“

Vestur með landinu

Næsta mánudag kemur línubáturinn Páll Jónsson GK til Grindavíkur úr síðasta túr fyrir sumarstopp. Báturinn hefur verið fyrir austan land síðan í byrjun júní og lagt upp á Djúpavogi. Nú í vikunni hefur leiðin svo legið vestur með landinu og fiskað hefur verið á miðunum suður af Vatnajökli. Gísli skipstjóri væntir að landa 60-70 tonnum eftir túrinn, slíkt verði ágætt sé haft í huga að veiði á bolfisktegundum sé alltaf dræmari á sumrin en í annan tíma.

„Núna er mikið líf í sjónum og fiskurinn hefur nægt æti. Er því tregari til að bíta á krókunum á línunni. Svona er nú bara gangur náttúrunnar,“ segir Gísli. „Sú var tíðin að á sumrin var reynt að ná í löngu og keilu. Núna byggist hins vegar allt á að ná þorski og ýsu og koma í land með ferskt hráefni. Þá fer nýjasti fiskurinn í vinnslu og er fluttur ferskur til kaupenda í útlöndunum – en annar fiskur og sá stærsti fer í salt. Allt er þetta samkvæmt áætlun. Vinnslan hjá Vísi þarf sitt, en þar eru unnin 100 tonn af fiski á dag sem bátar fyrirtækisins leggja til.“

Algjör sjóborg

Nýr Páll Jónsson GK 7 kom til landsins í janúar á síðasta ári. Báturinn er 45 metra langur, 10,5 metra breiður. Er hann fyrsta nýsmíðin af þessari stærð sem Vísir hf. hefur fengið í meira en 50 ára sögu fyrirtækisins. Reynslan nú eftir eitt og hálft ár í útgerð, er afar góð, segir skipstjórinn.

„Þetta er algjör sjóborg sem haggast ekki. Vel fer um mannskap og aðstaðan er góð. Vélin er 1.000 hestöfl, skrúfan er stór og við góðar aðstæður gengur báturinn um tólf sjómílur. Í lestina komast 420 kör sem gerir 135-140 tonn af fiski.“

Með góðum mannskap

Alls eru fjórtán í áhöfn á Páli Jónssyni GK, en menn róa til skiptis og í hópnum öllum eru alls 24. Benedikt Páll Jónsson er skipstjóri á móti Gísla, sem nú er að hætta sem fyrr segir. Í hans stað kemur inn sem skipstjóri Jónas Ingi Sigurðsson.

„Sjómennskan hefur verið líf mitt,“ segir Gísli sem hefur verið til sjós frá 1966. Hann er frá Stokkseyri og var fyrst á bátum sem þaðan voru gerðir út. Var seinna á bátum austur á landi. Bjó svo alls þrjátíu ár í Þorlákshöfn og reri þaðan; skipstjóri frá árinu 1973. Árið 1996 réð hann sig síðan til Vísis hf. í Grindavík og munstraðist svo þegar fram liðu stundir á bátinn Pál Jónsson GK, hinn fyrri.

„Hjá Vísi hf. var ég fyrst með Frey GK, sem ég hafði átt sjálfur og gert út. Tók svo við Páli Jónssyni, og fór í fyrsta túr 11. september 2001, þann eftirminnilega dag þegar árásirnar voru gerðar á tvíburaturnana í New York. Á þeim 19 árum sem ég var með bátinn fiskuðust alls um 60 þúsund tonn sem er ansi gott. Á nýja Páli hefur líka gengið ljómandi vel og þar hef ég verið með góðum mannskap.

Skipstjóri í 48 ár

„Þegar einu verkefni lýkur set ég punktinn og sný mér að einhverju öðru. Alls 55 ár til sjós og 48 ár sem skipstjóri; þetta er bara orðið ágætt. Ætla að leggjast í ferðalög og njóta lífsins; heilsan er góð og lífskrafturinn enn til staðar. Fram undan eru skemmtilegir tímar,“ segir Gísli.

Páll Jónsson GK er nýsmíði og kom til landsins í …
Páll Jónsson GK er nýsmíði og kom til landsins í byrjun síðasta árs. Reynslan af bátnum er góð, segir Gísli sem þarna endar feril sinn. Ljósmynd/Jón Steinar Sæmundsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 637,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 395,77 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,94 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 633,84 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.7.24 Svala Dís SI 14 Handfæri
Þorskur 2.080 kg
Ufsi 55 kg
Samtals 2.135 kg
25.7.24 Áki Í Brekku SU 760 Handfæri
Ufsi 502 kg
Þorskur 251 kg
Samtals 753 kg
25.7.24 Stormur ST 69 Landbeitt lína
Ýsa 1.871 kg
Þorskur 1.280 kg
Steinbítur 413 kg
Samtals 3.564 kg
25.7.24 Mardís SU 64 Handfæri
Þorskur 238 kg
Samtals 238 kg
25.7.24 Steinunn SF 10 Botnvarpa
Þorskur 29.909 kg
Ýsa 25.391 kg
Steinbítur 9.715 kg
Skarkoli 8.346 kg
Ufsi 2.011 kg
Þykkvalúra 681 kg
Skötuselur 332 kg
Karfi 288 kg
Langa 217 kg
Langlúra 67 kg
Hlýri 21 kg
Keila 7 kg
Samtals 76.985 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 637,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 395,77 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,94 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 633,84 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.7.24 Svala Dís SI 14 Handfæri
Þorskur 2.080 kg
Ufsi 55 kg
Samtals 2.135 kg
25.7.24 Áki Í Brekku SU 760 Handfæri
Ufsi 502 kg
Þorskur 251 kg
Samtals 753 kg
25.7.24 Stormur ST 69 Landbeitt lína
Ýsa 1.871 kg
Þorskur 1.280 kg
Steinbítur 413 kg
Samtals 3.564 kg
25.7.24 Mardís SU 64 Handfæri
Þorskur 238 kg
Samtals 238 kg
25.7.24 Steinunn SF 10 Botnvarpa
Þorskur 29.909 kg
Ýsa 25.391 kg
Steinbítur 9.715 kg
Skarkoli 8.346 kg
Ufsi 2.011 kg
Þykkvalúra 681 kg
Skötuselur 332 kg
Karfi 288 kg
Langa 217 kg
Langlúra 67 kg
Hlýri 21 kg
Keila 7 kg
Samtals 76.985 kg

Skoða allar landanir »