Bjarni og Árni í 7.000 sjómílna loðnuleiðangur

Skip Hafrannsóknastofnunar við bryggju í Hafnarfirði. Skipin hafa lagt af …
Skip Hafrannsóknastofnunar við bryggju í Hafnarfirði. Skipin hafa lagt af stað í loðnuleiðangur sem mun standa í rúmar tvær vikur. mbl.is/sisi

Áætlað er að rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson sigli um 7.000 sjómílur í haustleiðangri Hafrannsóknastofnunar til rannsóknar á loðnu sem hófst í gær. Árni Friðriksson mun vera 19 daga á sjó en Bjarni Sæmundsson 17 daga.

Fram kemur í færslu á vef Hafrannsóknastofnunar að „strax að loknum leiðangri og úrvinnslu gagna verður gefin út ný ráðgjöf um veiðar á loðnu fiskveiðiárið 2021-2022 en jafnframt verður um mánaðamótin nóvember-desember gefin ráðgjöf um upphafsaflamark fyrir vertíðina 2022-2023“.

Áætlaðar leiðarlínur rannsóknaskipanna Bjarna Sæmundssonar (bláar línur) og Árna Friðrikssonar …
Áætlaðar leiðarlínur rannsóknaskipanna Bjarna Sæmundssonar (bláar línur) og Árna Friðrikssonar (grænar línur) við loðnurannsóknir næstu þrjár vikur. Búast má við að breyta þurfi leiðarlínum og yfirferð til að aðlagast aðstæðum t.d. vegna hafíss, veðurs og fleira. Mynd/Hafrannsóknastofnun

Um er að ræða samstarfsverkefni Íslands og Grænlands og fer Bjarni Sæmundsson fyrir hönd Hafrannsóknastofnunar en Grænlendingar hafa tekið Árna Friðriksson á leigu.

„Meginmarkmiðið leiðangursins er mæling á stærð veiðistofns (kynþroska loðna sem ætla má að komi til hrygningar 2022) og mæling á magni ungloðnu (eins árs ókynþroska loðna sem verður uppistaðan í veiðistofni 2022-2023). Auk þess verða stundaðar umhverfis- og vistfræðirannsóknir í leiðangrinum sem snúa meðal annars að því að skoða tengsl umhverfisþátta og hafstrauma við útbreiðslu og göngur loðnu ásamt því sem útbreiðsla og mergð svifdýra verður skoðuð m.a. með tilliti til fæðuöflunar loðnu,“ segir í færslunni.

Þá er rannsóknasvæðið í vestanverðu Íslandshafi, Grænlandssundi og suðvestur með landgrunni Grænlands um 100 mílur vestur af Angmagssalik. Einnig verður farið norðaustur með grænlenska landgrunninu norður að Shannon-eyju sem er við 75. breiddargráðu.

Hægt verður að fylgjast með staðsetningu og ferli skipanna í beinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 637,25 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 396,55 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,63 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 633,84 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína
Steinbítur 1.366 kg
Ýsa 517 kg
Þorskur 86 kg
Hlýri 6 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 1.981 kg
24.7.24 Hilmir ST 1 Handfæri
Þorskur 660 kg
Ufsi 121 kg
Ýsa 98 kg
Samtals 879 kg
24.7.24 Sæbyr ST 25 Handfæri
Þorskur 1.161 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 1.164 kg
24.7.24 Margrét GK 33 Lína
Ýsa 4.567 kg
Þorskur 1.786 kg
Steinbítur 270 kg
Langa 7 kg
Hlýri 5 kg
Samtals 6.635 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 637,25 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 396,55 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,63 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 633,84 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína
Steinbítur 1.366 kg
Ýsa 517 kg
Þorskur 86 kg
Hlýri 6 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 1.981 kg
24.7.24 Hilmir ST 1 Handfæri
Þorskur 660 kg
Ufsi 121 kg
Ýsa 98 kg
Samtals 879 kg
24.7.24 Sæbyr ST 25 Handfæri
Þorskur 1.161 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 1.164 kg
24.7.24 Margrét GK 33 Lína
Ýsa 4.567 kg
Þorskur 1.786 kg
Steinbítur 270 kg
Langa 7 kg
Hlýri 5 kg
Samtals 6.635 kg

Skoða allar landanir »