Allir skipverjar á Dettifossi aftur frískir

Dettifoss við bryggju.
Dettifoss við bryggju. mbl.is/Arnþór Birkisson

Allir í áhöfn m/s Dettifoss eru lausir úr sóttkví og komnir aftur til starfa, eftir að Covid-smit greindist hjá einum skipverja nú í byrjun mánaðarins. Vegna þess voru allir sem um borð voru settir í sóttkví eftir að skipið kom til landsins og ný áhöfn tók við. Áður hafði skipið verið þrifið og aðrar ráðstafanir gerðar.

„Viðbrögðin við smitinu voru samkvæmt áætlunum sem fyrir lágu. Aðeins einn sjómaður varð veikur, aðrir fóru í sóttkví og reyndust svo ekki smitaðir. Þetta fór því allt eins og best varð á kosið. Áhöfnin er laus úr sóttkví og á leið um borð í vikunni,“ segir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs Eimskips.

Dettifoss, sem er systurskip Brúarfoss, kom nýtt inn í flota Eimskips á síðasta ári. Skipin tvö eru 180 metra löng, 31 metra breið og geta borið alls 2.150 gámaeiningar.

Dettifoss er á svonefndri Rauðri leið hjá Eimskip – og siglir skv. þeirri áætlun út frá Reykjavík til Nuuk á Grænlandi, Þórshafnar í Færeyjum og hafna á Norðurlöndunum. Skipið er nú á heimleið úr Norðurlandasiglingu og kemur inn til Reykjavíkur úr þeirri för í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 637,25 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 396,55 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,63 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 633,84 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína
Steinbítur 1.366 kg
Ýsa 517 kg
Þorskur 86 kg
Hlýri 6 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 1.981 kg
24.7.24 Hilmir ST 1 Handfæri
Þorskur 660 kg
Ufsi 121 kg
Ýsa 98 kg
Samtals 879 kg
24.7.24 Sæbyr ST 25 Handfæri
Þorskur 1.161 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 1.164 kg
24.7.24 Margrét GK 33 Lína
Ýsa 4.567 kg
Þorskur 1.786 kg
Steinbítur 270 kg
Langa 7 kg
Hlýri 5 kg
Samtals 6.635 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 637,25 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 396,55 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,63 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 633,84 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína
Steinbítur 1.366 kg
Ýsa 517 kg
Þorskur 86 kg
Hlýri 6 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 1.981 kg
24.7.24 Hilmir ST 1 Handfæri
Þorskur 660 kg
Ufsi 121 kg
Ýsa 98 kg
Samtals 879 kg
24.7.24 Sæbyr ST 25 Handfæri
Þorskur 1.161 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 1.164 kg
24.7.24 Margrét GK 33 Lína
Ýsa 4.567 kg
Þorskur 1.786 kg
Steinbítur 270 kg
Langa 7 kg
Hlýri 5 kg
Samtals 6.635 kg

Skoða allar landanir »