Stærsti nemendahópur sjávarútvegsskólans til þessa

Nemendur í Sjávarútvegsskóla Gró hafa aldrei verið fleiri.
Nemendur í Sjávarútvegsskóla Gró hafa aldrei verið fleiri. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Sjávarútvegsskóli Gró hefur tekið til starfa á ný eftir árs hlé sökum heimsfaraldurs og koma nemendur víðsvegar að, frá 17 ríkjum. Um er að ræða stærsta hóp sem komið hefur hingað til lands á vegum skólans, að því er fram kemur í færslu á vef Hafrannsóknastofnunar sem hýsir skólann.

Á þriðjudag var farið í vettvangsferð í tilraunaeldisstöðina að Stað við Grindavík þar sem starfsmenn stöðvarinnar tóku á móti nemendum og kynntu starfsemina. „Stöðin vakti mikinn áhuga og útskýrðu starfsmennirnir hin ýmsu verkefni sem þar eru unnin. Fólkið var mjög áhugasamt og spurði mikið út í starfsemina,“ segir í færslunni.

Haraldur Einarsson fræðir um veiðarfæri.
Haraldur Einarsson fræðir um veiðarfæri. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Þá var Haraldur Einarsson, veiðarfærasérfræðingur, með í vettvangsferðinni og fræddi nemendur um ólík veiðarfæri og virkni þeirra við netaverkstæðið í Grindavík. Auk þess skoðuðu nemendur Saltfisksetrið í Grindavík var einnig skoðað og var að lokum gengið að hrauninu í Nátthaga.

Skólinn, sem starfræktur er undir merkjum UNESCO, tók til starfa 1. janúar 2020 byggir á grunni Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna sem var stofnaður árið 1998 með þríhliða samkomulagi milli Háskóla Sameinuðu þjóðanna, utanríkisráðuneytisins og Hafrannsóknastofnunar.

Nemendur sýndu tilraunaeldinu á Stað mikinn áhuga.
Nemendur sýndu tilraunaeldinu á Stað mikinn áhuga. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 6.738 kg
Þorskur 873 kg
Steinbítur 217 kg
Skarkoli 101 kg
Hlýri 3 kg
Samtals 7.932 kg
22.7.24 Tjálfi SU 63 Dragnót
Skarkoli 1.132 kg
Þorskur 769 kg
Steinbítur 685 kg
Ýsa 240 kg
Sandkoli 230 kg
Samtals 3.056 kg
22.7.24 Gaffallinn EA 0 Sjóstöng
Þorskur 8.086 kg
Ýsa 50 kg
Ufsi 11 kg
Steinbítur 2 kg
Sandkoli 1 kg
Samtals 8.150 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 6.738 kg
Þorskur 873 kg
Steinbítur 217 kg
Skarkoli 101 kg
Hlýri 3 kg
Samtals 7.932 kg
22.7.24 Tjálfi SU 63 Dragnót
Skarkoli 1.132 kg
Þorskur 769 kg
Steinbítur 685 kg
Ýsa 240 kg
Sandkoli 230 kg
Samtals 3.056 kg
22.7.24 Gaffallinn EA 0 Sjóstöng
Þorskur 8.086 kg
Ýsa 50 kg
Ufsi 11 kg
Steinbítur 2 kg
Sandkoli 1 kg
Samtals 8.150 kg

Skoða allar landanir »