Þörungablómi á Austfjörðum geta valdið fiskdauða

Creatium lineatum í sýni úr Reyðarfirði frá 15. september 2021. …
Creatium lineatum í sýni úr Reyðarfirði frá 15. september 2021. Myndin er tekin í gegnum smásjá með 10x20 stækkun. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Borið hefur á miklum þörungablóma inni á Reyðarfirði og á Seyðisfirði undanfarna daga, jafnvel víðar á Austfjörðum. Sýni frá Reyðarfirði bárust Hafrannsóknastofnun til greiningar í gær, að því er fram kemur á vef stofnunarinnar.

Þar segir að greiningin hafi leitt í ljós að um sé að ræða skoruþörunginn Ceratium lineatum. „Blómi þessarar tegundar er ekki alveg óþekkt fyrirbæri hér við land og sást til dæmis töluvert af henni í Breiðafirði í ágúst síðastliðnum.“

Þá eru Ceratium-tegundir sagðar þekktar fyrir að fjölga sér hratt við ákveðnar aðstæður og valda svo miklum blóma að þörungabreiðurnar verða sjáanlegar á yfirborði sjávar. „Þó að þörungarnir sjálfir myndi ekki eitur og séu þannig ekki eiturþörungar, geta svo miklir blómar valdið álagi á vistkerfið og jafnvel orsakað fiskdauða. Það er vegna þess að þörungarnir geta sest í tálkn fiskanna og þá er það einkum fjöldi þeirra í hverjum lítra sjávar sem veldur álaginu.“

Þekkt er að að blómi svifþörunga geti orðið að haustlagi þegar lagskiptingin við yfirborð fer að brotna upp og næringarefni berast við þá blöndun til yfirborðslagsins þar sem birtu nýtur, að því er segir í tilkynningunni. „Ekki eru til nýjar umhverfismælingar úr Reyðarfirði en athuganir voru gerðar í Fáskrúðsfirði um miðjan ágúst, þá var þar skýr lagskipting við yfirborð. Blómans er vart víða við Austfirði þannig að þau skilyrði sem ýta undir svo stórfelldan blóma svifþörunga eru ekki einungis bundin við Reyðarfjörð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 637,25 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 396,55 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,63 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 633,84 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 7.778 kg
Langa 1.034 kg
Ýsa 469 kg
Hlýri 434 kg
Keila 426 kg
Steinbítur 275 kg
Ufsi 164 kg
Karfi 22 kg
Samtals 10.602 kg
24.7.24 Sigrún EA 52 Handfæri
Ufsi 196 kg
Þorskur 143 kg
Samtals 339 kg
24.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 1.630 kg
Ufsi 17 kg
Samtals 1.647 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 637,25 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 396,55 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,63 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 633,84 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 7.778 kg
Langa 1.034 kg
Ýsa 469 kg
Hlýri 434 kg
Keila 426 kg
Steinbítur 275 kg
Ufsi 164 kg
Karfi 22 kg
Samtals 10.602 kg
24.7.24 Sigrún EA 52 Handfæri
Ufsi 196 kg
Þorskur 143 kg
Samtals 339 kg
24.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 1.630 kg
Ufsi 17 kg
Samtals 1.647 kg

Skoða allar landanir »