Verndarsjóður villtra laxastofna hefur birt myndir á vef sínum sem sýna dauða eldislaxa fljótandi ofan á eldiskvíum í sjó á Reyðarfirði.
Veiga Grétarsdóttir kajakræðari tók myndirnar daganna 10. til 15. september eins og kemur fram í tilkynningu frá samtökunum.
Í tilkynningunni segir að fiskurinn á myndunum sé rotnandi, innan um lifandi fisk sem ætlaður er til manneldis.
„Ég fylgdist með úr fjarska á föstudeginum og sá starfsmenn eldisfyrirtækisins dæla dauðum laxi úr kvínni í einn og hálfan tíma og eins og sést á þessum myndum þá er þetta hinn nöturlegi raunveruleiki. Eftir helgina hafði þetta hinsvegar versnað enn meira.
Ég skil ekki að nokkur maður hafi lyst á að leggja sér eldisfisk úr þessum kvíum til munns eða styðja svona framleiðslu. Þegar fiskurinn drepst þarna er búið að reyna ýmislegt en þarna er samt mikið magn af haus- og roðlausum úldnandi fiski og allan tíman safnast upp mengun í firðinum af þessu,“ er haft eftir Veigu Grétarsdóttur í tilkynningu.
Veiga segir ennfremur að á þriðjudeginum hafi þörungablómi einnig farið vaxandi en ljóst má vera að laxadauðinn mun aukast enn frekar vegna þörunganna.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 24.7.24 | 637,25 kr/kg |
Þorskur, slægður | 24.7.24 | 539,60 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 24.7.24 | 396,55 kr/kg |
Ýsa, slægð | 24.7.24 | 292,98 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 24.7.24 | 203,63 kr/kg |
Ufsi, slægður | 24.7.24 | 286,75 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 24.7.24 | 633,84 kr/kg |
Litli karfi | 23.7.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
24.7.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 1.366 kg |
Ýsa | 517 kg |
Þorskur | 86 kg |
Hlýri | 6 kg |
Skarkoli | 6 kg |
Samtals | 1.981 kg |
24.7.24 Hilmir ST 1 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 660 kg |
Ufsi | 121 kg |
Ýsa | 98 kg |
Samtals | 879 kg |
24.7.24 Sæbyr ST 25 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 1.161 kg |
Ýsa | 3 kg |
Samtals | 1.164 kg |
24.7.24 Margrét GK 33 Lína | |
---|---|
Ýsa | 4.567 kg |
Þorskur | 1.786 kg |
Steinbítur | 270 kg |
Langa | 7 kg |
Hlýri | 5 kg |
Samtals | 6.635 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 24.7.24 | 637,25 kr/kg |
Þorskur, slægður | 24.7.24 | 539,60 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 24.7.24 | 396,55 kr/kg |
Ýsa, slægð | 24.7.24 | 292,98 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 24.7.24 | 203,63 kr/kg |
Ufsi, slægður | 24.7.24 | 286,75 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 24.7.24 | 633,84 kr/kg |
Litli karfi | 23.7.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
24.7.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 1.366 kg |
Ýsa | 517 kg |
Þorskur | 86 kg |
Hlýri | 6 kg |
Skarkoli | 6 kg |
Samtals | 1.981 kg |
24.7.24 Hilmir ST 1 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 660 kg |
Ufsi | 121 kg |
Ýsa | 98 kg |
Samtals | 879 kg |
24.7.24 Sæbyr ST 25 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 1.161 kg |
Ýsa | 3 kg |
Samtals | 1.164 kg |
24.7.24 Margrét GK 33 Lína | |
---|---|
Ýsa | 4.567 kg |
Þorskur | 1.786 kg |
Steinbítur | 270 kg |
Langa | 7 kg |
Hlýri | 5 kg |
Samtals | 6.635 kg |