Risavertíð fram undan í vetur

Þorsteinn Sigurðsson forstjóri kynnir ráðgjöfina á fundi með fjölmiðlamönnum í …
Þorsteinn Sigurðsson forstjóri kynnir ráðgjöfina á fundi með fjölmiðlamönnum í húsakynnum Hafró í Hafnarfirði á föstudaginn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ráðgjöf um loðnukvóta upp á 904 þúsund tonn á vertíðinni í vetur, þann stærsta síðan í byrjun aldarinnar, voru tíðindin sem bárust frá Hafrannsóknastofnun í gærmorgun. Í hlut Íslands koma rúm 662 þúsund tonn eða hátt í tíu sinnum meira en síðasta vetur þegar kvóti Íslendinga var um 70 þúsund tonn. Einnig kom fram á fundinum að árgangurinn sem bera mun uppi veiðina 2022-23 væri sterkur.

Skipuleggja vertíðina

Útgerðarmenn sem rætt var við á föstudag voru ánægðir með tíðindin, en tóku jafnframt fram að það væri talsvert verkefni að ná þessum kvóta og hámarka verðmæti úr hráefninu. Fram undan væri að skipuleggja vertíð við allt aðrar aðstæður en fyrir um 20 árum þegar vertíð var álíka stór og sú sem er fram undan. Eftir væri að veiða fiskinn, vinna og selja og spurning væri m.a. hvaða áhrif mikið framboð hefði á markaði. Á þessari stundu væri ekki tímabært að slá á hverju vertíðin myndi skila í útflutningsverðmætum. Tölur upp á 50-60 milljarða heyrðust þó nefndar.

Heimilt er að byrja loðnuveiðar um miðjan október og er líklegt að einhver skipanna fari af stað í nóvember. Þá væri spurning um hvenær loðnan yrði veiðanleg og hvernig viðraði. Síðustu ár hefur ekki verið byrjað á loðnuveiðum fyrr en eftir áramót, þegar loðnuveiðar hafa á annað borð verið leyfðar. Staða fyrirtækjanna er líka misjöfn hvað varðar veiðar á síld og kolmunna.

Öflugur floti

Ísfélagið, Síldarvinnslan og Brim eru með mesta hlutdeild í loðnu, um fimmtung kvótans hvert fyrirtæki, og koma 120 til rúmlega 130 þúsund tonn í hlut skipa frá hverju þessara fyrirtækja. Frá síðustu vertíð hefur uppsjávarflotinn styrkst og skipum fjölgað.

Graf/mbl.is

Ísfélagið keypti Hardhaus frá Noregi og ber skipið nú nafnið Álsey, en fyrir voru Heimaey og Sigurður. Svanur hefur bæst í flota Brims, en fyrir voru Venus og Víkingur. Nýr og afkastamikill Börkur kom til Síldarvinnslunnar á árinu. Eldri Börkur ber nú nafnið Bjarni Ólafsson, en eldra skip með því nafni var selt úr landi. Vilhelm Þorsteinsson, skip Samherja, kom einnig nýr til landsins á árinu. Vinnslustöðin í Eyjum keypti fyrirtækið Hugin í Eyjum og þá um leið skip með því nafni. Er fyrirtækið með þrjú skip á uppsjávarveiðum eins og Eskja á Eskifirði.

Mikil orka inn í vistkerfið

Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, og Birkir Bárðarson fiskifræðingur fylgdu ráðgjöfinni úr hlaði á fundinum í gærmorgun. Þorsteinn sagði meðal annars að þetta væru mjög góðar fréttir, ekki bara þegar kæmi að veiðimöguleikum heldur einnig fyrir lífríkið. Ekki mætti gleyma því að loðnan væri ein mikilvægasta fæðutegund margra nytjastofna í okkar lögsögu og loðnan sem hefði vaxið upp við Austur-Grænland kæmi með ótrúlega mikla orku inn í okkar kerfi.

Hann sagði að miðað við vísitölu ungloðnu í leiðangrinum væru einnig góðar horfur fyrir vertíðina 2022-23. Vonandi værum við að sjá jákvæðar og varanlegar breytingar hvað loðnuna varðaði.

685 þúsund tonna vertíð?

Vísitala ókynþroska loðnu mældist 131,5 í haustleiðangrinum, og er sú þriðja hæsta frá upphafi mælinga, sem segir að mælst hafi 131,5 milljarðar einstaklinga. Í fyrra var vísitala ungloðnu sú næsthæsta í sögunni eða 146, en hæst var hún nálægt 200 í haustleiðangri 1995.

Á grundveli mælinga í fyrrahaust var gefinn út upphafskvóti upp á 400 þúsund tonn, en hefði verið yfir 700 þúsund tonn ef ekki væru til staðar varúðarreglur um upphafsaflamark. Þessi ráðgjöf hefur nú verið hækkuð í 904 þúsund tonn, eins og áður er rakið, og verður endurmetin í leiðangri eftir áramót.

Á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar er að finna samantekt um stofnmat þar sem segir að ekkert upphafsaflamark sé sett ef vísitalan sé lægri en 50. Aflamarkið vaxi síðan línulega þar til vísitalan sé 127, en þá sé sett þak á upphafsaflamarkið, 400 þúsund tonn. Líklegt er að Alþjóðahafrannsóknaráðið, ICES, gefi út kvóta upp á 400 þúsund tonn um mánaðamótin nóvember/desember. Væri ekki fyrir varúðarnálgun gæti vísitala upp á 131,5 gefið væntingar um 685 þús tonna vertíð.

Mega veiða 242 þúsund tonn

Af úthlutuðum loðnukvóta koma 80% í hlut Íslands eða 723.200 tonn af ráðgjöf upp á 904 þúsund tonn. Af þeirri tölu dragast 30 þúsund tonn frá vegna samnings Íslendinga og Færeyinga, en í samningnum er kveðið á um að af hlut Íslands fari 5% af heildinni til Færeyinga með þaki við 30 þúsund tonn ef kvótinn er hálf milljón eða meira. Smugusamningur Íslands og Noregs felur í sér að Norðmenn mega veiða hér við land tæplega 31 þúsund tonn af loðnu á næstu vertíð, sem koma á móti þorskveiðum Íslendinga í Barentshafi. Þá standa eftir rúmlega 662 þúsund sem koma í hlut Íslands, en alls fara um 242 þúsund tonn til erlendra skipa.

Grænlendingar eiga 15% af kvótanum eða 135.600 tonn og Norðmenn 5% eða 42.500 tonn, auk fyrrnefndra 30 þúsund tonna vegna Smugusamningsins. Hluti af samningsbundnum hlut Grænlendinga hefur farið til ESB, sem hefur síðan framselt þær heimildir til Norðmanna. Í norska blaðinu Fiskaren kom fram í gær að hlutur Norðmanna í loðnuveiðunum yrði alls að minnsta kosti 85.759 tonn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 372 kg
Samtals 372 kg
27.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 239 kg
Samtals 239 kg
26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 372 kg
Samtals 372 kg
27.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 239 kg
Samtals 239 kg
26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg

Skoða allar landanir »