Áhöfnin á Berki NK getur verið ánægð með síldarvertíðina enda hefur veiði gengið vel og síldin hin fallegasta, að sögn Hálfdan Hálfdanarsonar, skipstjóra á Berki.
Síldarvertíðin er í fullum gangi og fer allur afli sem skilað er til Síldarvinnslunnar í manneldisvinnslu. Á mánudag kom Börkur NK til Neskaupstaðar með 1.000 tonn eftri veiði á miðunum fyrir austan land. En á Norðfirði mætti Börkur Beiti NK sem var að ljúka við að landa 1.400 tonnum, að því er fram kemur í færslu á vef Síldarvinnslunnar.
„Við tókum þrjú hol í túrnum og hann var stuttur; 30 tímar höfn í höfn. Fyrsta holið var tekið norður á Glettinganesflakinu en tvö hin síðari í Seyðisfjarðardýpinu. Á sunnudagskvöldið var komin drullubræla og því var ekki unnt að halda áfram veiður. Ef veðrið hefði verið skaplegt hefðum við tekið eitt hol í viðbót,“ er haft eftir Hálfdani.
„Við fengum 380 tonn í fyrsta holinu, síðan 260 tonn og loks 340 tonn. Þetta er hin fallegasta síld sem þarna veiðist, en hún er heldur smærri suður frá en norðar. Í Seyðisfjarðardýpinu fengum við 340-350 gramma síld á meðan síldin norðar er 370-390 grömm. Þessi síldarvertíð er búin að vera alveg glimrandi og eins þægileg og hægt er að hugsa sér – stuttir túrar enda stutt að fara,“ segir skipstjórinn.
Þá segir Hálfdan að áhöfnin á Berki hafi náð að veiða um 7.000 tonn á vertíðinni. „Þetta getur eiginlega ekki verið mikið betra. Nú er kvótinn í norsk-íslenskri síld farinn að minnka en það eru svo sannarlega mörg verkefni framundan. Síldarvinnsluskipin eiga eftir að veiða um 10.000 tonn af kolmunna og svo er það íslenska sumargotssíldin. Ég held að Síldarvinnsluskipin eigi eftir að veiða um 10.000 tonn af íslenskri sumargotssíld.“
„Venjulega hefur verið farið í íslensku síldina um miðjan nóvember en nú er spurningin hvað verður gert því framundan er þessi risaloðnuvertíð. Ég held að allir reikni með því að loðnuveiðar hefjist fyrir áramótin og menn þurfa að halda vel á spöðunum til að ná loðnukvótanum. Við á uppsjávarskipunum þurfum sko ekki að kvarta undan verkefnaskorti. Þetta er alger veisla,“ fullyrðir Hálfdan.