Brýnt sé að endurskoða gjaldtöku af fiskeldi

Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknar í Norðvesturkjördæmi, segir ekki nóg …
Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknar í Norðvesturkjördæmi, segir ekki nóg af innheimtum gjöldum af fiskeldi skila sér til sveitarfélaga. Ljósmynd/Framsóknarflokkurinn

„Sveitarfélög eiga ekki að þurfa að sækja um í samkeppnissjóð til að byggja upp eins og nauðsynlegt er til þess að hámarksábati af fiskeldi skili sér,“ skrifar Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Hún kveðst telja brýnt að endurskoðuð verði gjaldtaka af fiskeldi hér á landi þannig að tekjur hin opinbera skili sér í auknum mæli til þeirra sveitarfélaga þar sem fiskeldi er stundað. „Það þarf ekki að snúa að aukinni gjaldtöku heldur þarf að tryggja að tekjur af slíkri gjaldtöku standi undir nauðsynlegum verkefnum þeirra sveitarfélaga sem standa næst eldinu.

Afstaða Höllu Signýjar er í takti við þau sjónarmið sem meðal annars bæjasrstjóri Vesturbyggðar hefur viðrað enda þurfti það sveitarfélag að grípa til umfangsmikilla fjárfestinga til að skapa fiskeldinu rými.

Meira til Austfjarða en Vestfjarða

Þá gagnrýnir Halla Signý að sveitarfélög á Austfjörðum hafi fengið mun meira úr fiskeldissjóði en sveitarfélög á Vestfjörðum þar sem mun meira er framleitt af eldisafurðum. Fengu vestfirsk sveitarfélög úthlutað 34 milljónum króna en austfirsk 70 milljónir. „Það er ljóst út frá þessari útfærslu að sveitarfélög geta ekki gert raunhæfa fjárhagsáætlun eða framkvæmdaáætlun með hliðsjón af starfsemi atvinnugreinarinnar eins og hægt er að gera út frá öðrum greinum sem stundaðar eru á svæðinu.“

Hægt er að lesa grein Höllu Signýjar í Morgunblaðinu í dag eða hér.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.1.25 588,14 kr/kg
Þorskur, slægður 28.1.25 648,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.1.25 375,72 kr/kg
Ýsa, slægð 28.1.25 326,38 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.1.25 230,05 kr/kg
Ufsi, slægður 28.1.25 293,97 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 28.1.25 231,27 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.1.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 11.122 kg
Ýsa 1.009 kg
Steinbítur 139 kg
Karfi 58 kg
Langa 25 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 12.356 kg
28.1.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 1.081 kg
Þorskur 861 kg
Steinbítur 796 kg
Karfi 7 kg
Keila 2 kg
Samtals 2.747 kg
28.1.25 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 2.317 kg
Ýsa 441 kg
Hlýri 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 2.813 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.1.25 588,14 kr/kg
Þorskur, slægður 28.1.25 648,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.1.25 375,72 kr/kg
Ýsa, slægð 28.1.25 326,38 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.1.25 230,05 kr/kg
Ufsi, slægður 28.1.25 293,97 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 28.1.25 231,27 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.1.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 11.122 kg
Ýsa 1.009 kg
Steinbítur 139 kg
Karfi 58 kg
Langa 25 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 12.356 kg
28.1.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 1.081 kg
Þorskur 861 kg
Steinbítur 796 kg
Karfi 7 kg
Keila 2 kg
Samtals 2.747 kg
28.1.25 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 2.317 kg
Ýsa 441 kg
Hlýri 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 2.813 kg

Skoða allar landanir »