Engir Íslendingar ákærðir í Namibíu

Alls voru tíu sem fóru fyrir dómara í Namibíu í …
Alls voru tíu sem fóru fyrir dómara í Namibíu í síðustu viku. Engar ákærur hafa verið gefnar út á hendur íslenskra ríkisborgara. Ljósmynd/Namibia Superior Courts

Alls eru tíu einstaklingar ákærðir í Namibíu í tengslum við ólögleg viðskipti með veiðiheimildir þar í landi. Ákæruliðirnir eru 42 en málið nær til 18 lögaðila. Málið (Fishrot) hefur verið kennt við starfsemi Samherja sem Samherjamálið en engir íslenskir ríkisborgarar né félög sem sem tengjast fyrirtækinu eru á meðal sakborninga í málinu.

Fram kemur í umfjöllun Namibian að sakborningar eru sakaðir um fjársvik, mútugreiðslur, spillingu, fjárkúgun, peningaþvætti og skattsvik. Þingsetning fór fram í síðustu viku en dómarinn Christine Liebenberg hefur ákveðið að gefa ákærðu frest til 20. janúar að undirbúa málsvörn.

Ákæruvaldið fullyrðir að ákærðu hafi átt samráð og átt í samstarfi um að hagnast fjárhagslega á úthlutun veiðiheimilda til dótturfélags Samherja. Er því meðal annars haldið fram að afnotagjöld af kvóta sem íslenska fyrirtækið greiddi hafi ratað til þeirra ákærðu auk fyrirtækja og sjóða sem þeir eru í forsvari fyrir. Opinberlega var veiðiheimildunum sem Samherji hafði fengið verið úthlutað í samræmi við „markmið hins opinbera í þágu almennings“.

Engar ákærur

Kjarninn greinir frá því í dag að í ákæruskjali – sem miðillinn hefur undir höndum – er ekki að finna íslenska ríkisborgara eða félög í Namibíu sem þeir stýrðu fyrir Samherja. Saksóknari lýsti því í febrúar að Íslendingar kynnu að verða ákærðir en ekki virðist hafa orðið úr því.

Forstöðumenn Samherja hafa ítrekað lýst þeirri afstöðu sinni að hvorki Samherji, félög á þeirra vegum eða starfsmenn fyrirtækisins hafi framið nokkur refsiverð brot nema þau sem Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi starfsmaður Samherja í Namibíu, hefur sjálfur sagt frá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 335,98 kr/kg
Þorskur, slægður 15.7.24 347,37 kr/kg
Ýsa, óslægð 15.7.24 363,11 kr/kg
Ýsa, slægð 15.7.24 310,07 kr/kg
Ufsi, óslægður 15.7.24 158,15 kr/kg
Ufsi, slægður 15.7.24 197,68 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 15.7.24 300,74 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Salómon Sig ST 70 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Bára NS 126 Handfæri
Þorskur 781 kg
Karfi 1 kg
Samtals 782 kg
16.7.24 Anna BA 20 Handfæri
Þorskur 776 kg
Samtals 776 kg
16.7.24 Gyða BA 277 Handfæri
Þorskur 758 kg
Samtals 758 kg
16.7.24 Gugga RE 9 Handfæri
Þorskur 822 kg
Samtals 822 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 335,98 kr/kg
Þorskur, slægður 15.7.24 347,37 kr/kg
Ýsa, óslægð 15.7.24 363,11 kr/kg
Ýsa, slægð 15.7.24 310,07 kr/kg
Ufsi, óslægður 15.7.24 158,15 kr/kg
Ufsi, slægður 15.7.24 197,68 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 15.7.24 300,74 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Salómon Sig ST 70 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Bára NS 126 Handfæri
Þorskur 781 kg
Karfi 1 kg
Samtals 782 kg
16.7.24 Anna BA 20 Handfæri
Þorskur 776 kg
Samtals 776 kg
16.7.24 Gyða BA 277 Handfæri
Þorskur 758 kg
Samtals 758 kg
16.7.24 Gugga RE 9 Handfæri
Þorskur 822 kg
Samtals 822 kg

Skoða allar landanir »