Ekki náðist samkomulag um síld eða kolmunna

Hoffell SU á kolmunnaveiðum. ekki eru samningar um skiptingu afla …
Hoffell SU á kolmunnaveiðum. ekki eru samningar um skiptingu afla milli þeirra ríkja sem veiða tegundina. mbl.is/Börkur Kjartansson

Ekki náðist samkomulag um skiptingu heildarafla í norsk-íslenskri síld og kolmunna í viðræðum strandríkja í London síðustu daga. Ákveðið var að halda samningafundi um skiptingu veiða í upphafi næsta árs, með það að markmiði að samkomulag geti leitt til sjálfbærra veiða strax árið 2022.

Ekkert heildarsamkomulag er í gildi um stjórnun veiða á þessum tegundum í Norðaustur-Atlantshafi, né á makríl, og hefur afli síðustu ára verið talsvert umfram ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES).

Í frétt frá sjávarútvegsráðuneytinu kemur fram að strandríkin séu sammála um að mikilvægt sé að leggja þunga áherslu á að reyna að ná niðurstöðu um skiptingu heildarafla. Án slíks samkomulags sé ljóst að raunverulegar veiðar verði umtalsvert meiri en sem nemur vísindaráðgjöfinni.

Strandríkin voru sammála um að heildarveiðar skuli ekki vera umfram vísindaráðgjöf ICES og var því samþykkt að setja heildaraflamark sem er 598.588 tonn fyrir norsk-íslenska síld og 752.736 tonn fyrir kolmunna. Jafnframt var ákveðið að fela vísindamönnum strandríkjanna að uppfæra samantekt frá 2013 um dreifingu kolmunna.

Strandríkin hafa hvert fyrir sig sett sér kvóta í kolmunna og norsk-íslenskri síld á eigin forsendum og hefur heildaraflinn farið talsvert umfram ráðgjöf síðustu ár.

Viðræður strandríkja um makríl stóðu enn yfir í London síðdegis í gær.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 8.7.24 425,70 kr/kg
Þorskur, slægður 8.7.24 410,69 kr/kg
Ýsa, óslægð 8.7.24 380,66 kr/kg
Ýsa, slægð 8.7.24 300,95 kr/kg
Ufsi, óslægður 8.7.24 174,51 kr/kg
Ufsi, slægður 8.7.24 212,47 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 8.7.24 344,71 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.7.24 Snarfari II AK 117 Handfæri
Þorskur 255 kg
Samtals 255 kg
8.7.24 Skírnir AK 12 Handfæri
Þorskur 444 kg
Karfi 26 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 473 kg
8.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 677 kg
Keila 6 kg
Ýsa 2 kg
Karfi 1 kg
Samtals 686 kg
8.7.24 Viðvík SH 119 Handfæri
Þorskur 163 kg
Samtals 163 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 8.7.24 425,70 kr/kg
Þorskur, slægður 8.7.24 410,69 kr/kg
Ýsa, óslægð 8.7.24 380,66 kr/kg
Ýsa, slægð 8.7.24 300,95 kr/kg
Ufsi, óslægður 8.7.24 174,51 kr/kg
Ufsi, slægður 8.7.24 212,47 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 8.7.24 344,71 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.7.24 Snarfari II AK 117 Handfæri
Þorskur 255 kg
Samtals 255 kg
8.7.24 Skírnir AK 12 Handfæri
Þorskur 444 kg
Karfi 26 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 473 kg
8.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 677 kg
Keila 6 kg
Ýsa 2 kg
Karfi 1 kg
Samtals 686 kg
8.7.24 Viðvík SH 119 Handfæri
Þorskur 163 kg
Samtals 163 kg

Skoða allar landanir »