Mikill eldur laus að sögn skipstjórans

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey VE, segir betur hafi …
Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey VE, segir betur hafi farið en á horfðist. Ljósmynd/Síldarvinnslan

„Það mun hafa verið um kl. 15.30 í gær að við fundum mikið högg koma á skipið. Ég hélt fyrst að við hefðum keyrt á drumb en það kom strax í ljós að svo var ekki. Það hafði orðið sprenging í vélarúminu; sveifarásinn hafði spýst út úr blokk annarrar vélarinnar og mikill eldur var laus.“

Þannig hefst lýsing Birgis Þórs Sverrissonar, skipstjóra Vestmannaeyjar VE, á því þegar eldur kviknaði um borð. Togarinn var staddur austur af landinu á landleið með fullfermi.

„Vélstjórinn hljóp niður í vélarúmið og sá strax mikinn reyk. Hann tók slökkvitæki og byrjaði að sprauta úr því en sá þegar að það dygði ekki og þá var vélarúminu lokað. Eldvarnakerfið um borð og neyðaráætlun fyrir skipið var þegar virkjuð. Allri áhöfninni var komið á mótstað aftan við brúna, loftinntökum niður í vélarúm lokað, drepið á vélarúmsblásurum og eldsneytisdælur stöðvaðar,“ segir í frásögninni sem birt hefur verið á vef Síldarvinnslunnar.

Í sambandi við slökkvilið

„Síðan var skotið á með slökkvikerfi í vélarúminu þegar búið var að tryggja að súrefni kæmist hvergi að. Við höfðum strax samband við Landhelgisgæsluna og einnig slökkviliðsstjóra í Reykjavík og fengum þar góð ráð en við töldum fljótlega að eldurinn væri slökktur.“

„Strax og menn gerðu sér grein fyrir hvað var að gerast var haft samband við Bergey VE sem var að veiðum skammt frá okkur. Þeir voru beðnir um að hífa og koma strax til okkar og þeir voru komnir 40 mínútum síðar. Strax var farið að koma dráttartaug á milli skipanna og tókst það farsællega. Síðan lagði Bergey af stað til Neskaupstaðar með okkur í togi um sexleytið í gær.“

„Haft var samband við slökkvilið Fjarðabyggðar og sendu þeir strax tvo menn með hafnsögubátnum Vetti til móts við okkur. Þeir voru með hitamyndavél og sýndi hún að líklega væri enginn eldur logandi í vélarúminu en mikill hiti. Vöttur fylgdi okkur að landi en til hafnar í Neskaupstað komu skipin um kl. 3 í nótt. Þegar vélarúmið var opnað kom í ljós að eldurinn var kulnaður þannig að einungis þurfti að reykræsta.“

Þakkar áhöfn og viðbragðsaðilum

„Ég tel að snögg og góð viðbrögð hafi komið í veg fyrir að þarna færi verr. Áhöfnin stóð sig frábærlega og var yfirveguð allan tímann. Ég vil koma á framfæri góðum þökkum til Bergeyjarmanna fyrir alla aðstoðina og eins vil ég þakka landhelgisgæslunni, slökkviliði Fjarðabyggðar og áhöfninni á Vetti fyrir veitta aðstoð. Ég tel að fagmannleg viðbrögð hafi þarna skipt öllu máli og áhöfnin byggir á góðum grunni frá Slysavarnaskóla sjómanna,“ segir Birgir Þór.

„Fyrir liggur að tjón á vélinni er mikið en aðalvélar skipsins eru tvær. Nú verður strax farið að huga að viðgerð,“ útskýrir hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 10.1.25 530,91 kr/kg
Þorskur, slægður 10.1.25 666,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 10.1.25 311,13 kr/kg
Ýsa, slægð 10.1.25 245,17 kr/kg
Ufsi, óslægður 10.1.25 266,60 kr/kg
Ufsi, slægður 10.1.25 298,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 10.1.25 341,64 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

10.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 2.870 kg
Þorskur 657 kg
Keila 118 kg
Hlýri 67 kg
Ufsi 13 kg
Samtals 3.725 kg
10.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 7.696 kg
Ýsa 3.572 kg
Steinbítur 629 kg
Langa 201 kg
Hlýri 34 kg
Keila 33 kg
Karfi 6 kg
Samtals 12.171 kg
10.1.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Þorskur 90 kg
Ýsa 83 kg
Steinbítur 57 kg
Langa 56 kg
Hlýri 48 kg
Keila 40 kg
Karfi 23 kg
Samtals 397 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 10.1.25 530,91 kr/kg
Þorskur, slægður 10.1.25 666,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 10.1.25 311,13 kr/kg
Ýsa, slægð 10.1.25 245,17 kr/kg
Ufsi, óslægður 10.1.25 266,60 kr/kg
Ufsi, slægður 10.1.25 298,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 10.1.25 341,64 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

10.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 2.870 kg
Þorskur 657 kg
Keila 118 kg
Hlýri 67 kg
Ufsi 13 kg
Samtals 3.725 kg
10.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 7.696 kg
Ýsa 3.572 kg
Steinbítur 629 kg
Langa 201 kg
Hlýri 34 kg
Keila 33 kg
Karfi 6 kg
Samtals 12.171 kg
10.1.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Þorskur 90 kg
Ýsa 83 kg
Steinbítur 57 kg
Langa 56 kg
Hlýri 48 kg
Keila 40 kg
Karfi 23 kg
Samtals 397 kg

Skoða allar landanir »