Viljayfirlýsing um samstarf milli Rotterdamhafnar og Fjarðabyggðarhafna á sviði hafnamála með sérstaka áherslu á framleiðslu vetnis og annarra grænna orkugjafa var undirrituð í Rotterdam á fimmtudag.
Vakin er athygli á þessu á vef Fjarðabyggðar og segir þar að um sé að ræða „skref í þróun á hugsanlegri framleiðslu á vetni og rafeldsneyti í grænum orkugarði sem stefnt er á að settur verði á laggirnar á Reyðarfirði.“
Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, og Birgitta Rúnarsdóttir, verkefnastjóri hafna, sóttu fyrir hönd Fjarðabyggðahafna fundi og málstofur sem Hollenska ríkið efndi til um framleiðslu græns vetnis og rafeldsneytis sem haldnir voru í Amsterdam.
Þátttakendum frá fjórtán öðrum löndum í heiminum þar sem líklegt þykir að framleiðsla vetnis og grænna orkugjafa muni fara fram var einnig boðið.
„Rotterdamhöfn er stærsta höfn í Evrópu með gríðarmikil umsvif og þar er að finna mikla þekkingu á iðnaði og flutningum og ekki síst flutningi á slíkum orkugjöfum. Að hafa slíkan samstarfsaðila er ómetanlegt fyrir Fjarðabyggðarhafnir í þeirri vinnu sem fram undan er, enda er það markmið bæjarstjórnar Fjarðabyggðar að sveitarfélagið verði miðstöð framleiðslu grænna orkugjafa á Íslandi,“ segir á vef Fjarðabyggðar.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 24.7.24 | 637,25 kr/kg |
Þorskur, slægður | 24.7.24 | 539,60 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 24.7.24 | 396,55 kr/kg |
Ýsa, slægð | 24.7.24 | 292,98 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 24.7.24 | 203,63 kr/kg |
Ufsi, slægður | 24.7.24 | 286,75 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 24.7.24 | 633,84 kr/kg |
Litli karfi | 23.7.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
24.7.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 1.366 kg |
Ýsa | 517 kg |
Þorskur | 86 kg |
Hlýri | 6 kg |
Skarkoli | 6 kg |
Samtals | 1.981 kg |
24.7.24 Hilmir ST 1 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 660 kg |
Ufsi | 121 kg |
Ýsa | 98 kg |
Samtals | 879 kg |
24.7.24 Sæbyr ST 25 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 1.161 kg |
Ýsa | 3 kg |
Samtals | 1.164 kg |
24.7.24 Margrét GK 33 Lína | |
---|---|
Ýsa | 4.567 kg |
Þorskur | 1.786 kg |
Steinbítur | 270 kg |
Langa | 7 kg |
Hlýri | 5 kg |
Samtals | 6.635 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 24.7.24 | 637,25 kr/kg |
Þorskur, slægður | 24.7.24 | 539,60 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 24.7.24 | 396,55 kr/kg |
Ýsa, slægð | 24.7.24 | 292,98 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 24.7.24 | 203,63 kr/kg |
Ufsi, slægður | 24.7.24 | 286,75 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 24.7.24 | 633,84 kr/kg |
Litli karfi | 23.7.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
24.7.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 1.366 kg |
Ýsa | 517 kg |
Þorskur | 86 kg |
Hlýri | 6 kg |
Skarkoli | 6 kg |
Samtals | 1.981 kg |
24.7.24 Hilmir ST 1 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 660 kg |
Ufsi | 121 kg |
Ýsa | 98 kg |
Samtals | 879 kg |
24.7.24 Sæbyr ST 25 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 1.161 kg |
Ýsa | 3 kg |
Samtals | 1.164 kg |
24.7.24 Margrét GK 33 Lína | |
---|---|
Ýsa | 4.567 kg |
Þorskur | 1.786 kg |
Steinbítur | 270 kg |
Langa | 7 kg |
Hlýri | 5 kg |
Samtals | 6.635 kg |