Verkefnin hafa verið næg hjá Slippnum á Akureyri að undanförnu og er gert ráð fyrir að það verði tilfellið fam yfir áramót. Er nú unnið hörðum höndum að endurnýjun vinnslubúnaðar í ístogaranum Frosta ÞH-229 frá Grenivík, að því er fram kemur í færslu á vef Slippsins á Akureyri.
Við viðlegukantinn má sjá frystitogarann Hrafn Sveinbjarnarson GK-255 sem Þorbjörn hf gerir út frá Grindavík. Nokkrar vikur eru frá því að skipið kom til Akureyrar og er ætlunin að aðstoða Kælismiðjuna Frost við niðurrif á frystikerfinu í skipinu, smíða nýtt frystivélarrými, mála vinnsludekkið í skipinu ásamt öðrum minniháttar viðhaldsverkefnum.
Skagstrendingurinn Arnar HU-1 sem FISK-Seafood ehf. gerir út er einnig við viðlegukantinn en í honum var skipt um allar legur í togspili, skipið heilmálað og öxuldregið, upptekt á skrúfuhaus ásamt breytingum og smíði á nýjum búnaði fyrir vinnsludekkið. Kælismiðjan Frost hefur einnig unnið við breytingar á frystikerfinu í skipinu og aðstoðaði Slippurinn við að koma eldri búnaði frá borði og smíða undirstöður fyrir nýjan búnað.
Þá er Sighvatur Bjarnason VE-81 í dráttarbrautinni og er stefnt að því að gera uppsjávarskipið, sem er í eigu Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum, klárt fyrir loðnuvertíðina.
„Verkefnastaðan er góð en sökum stærðar okkar við höfum þó yfirleitt tök á því að bæta við okkur verkefnum, komi upp þannig aðstæður. Við erum byrjaðir að fá inn bókanir fyrir næsta ár enda erum við að upplifa að afhendingartími á öllum aðföngum er mun lengri áður og því er mjög mikilvægt að skipuleggja verkefnin vel og huga snemma að viðhaldsmálum komandi mánaða. Við hjá Slippnum höfum verið að undirbúa okkur fyrir að geta þjónustað viðskiptavini okkar sem best, bæði með aukinni verkþekkingu sem og útvegun aðfanga í gegnum tengslanet okkar innanlands sem og erlendis,“segir Sveinbjörn Pálsson, nýráðinn sviðsstjóri skipaþjónustu Slippsins Akureyri, í færslunni.
„Útgerðir uppsjávarskipa eru nú í óða önn að undirbúa stóra loðnuvertíð og erum við nú að aðstoða útgerðirnar við undirbúning skipa fyrir hana. Þetta er gríðarleg lyftistöng fyrir útgerðina sem og alla þá sem starfa við að þjónusta sjávarútveginn,“ segir hann.