Meðalverð á slægðum þorski hefur á þessu ári verið með því hæsta á fiskmörkuðum á undanförnum tæpum 15 árum og hefur meðalverð það sem af er þessu ári verið 400,83 krónur á kíló. Ljóst er að meðalverð ársins 2021 er langt umfram það verð sem tíðkast hefur.
Skýringar þess að verð sé hátt kunna að vera margar en mikilvægur þáttur í verðhækkunum hefur verið skert framboð að mati þeirra í greininni. Skertar hafa verið aflaheimildir í þorski um 13% við Íslandsstrendur en 20% í Barentshafi auk þess sem staða þorsksins í Norðursjó er enn slæm. Skerðing veiðiheimildanna á Íslandsmiðum og í Barentshafi var þó mun minni en gæti verið vegna jöfnunartækis í aflareglu.
Verð áfram hátt á næsta ári
Án jöfnunar kynni þorskkvótinn fyrir fiskveiðiárið 2021/2022 á Íslandsmiðum að hafa verið skertur um 27% í 188 þúsund tonn og í Barentshafi um 43% í 506 þúsund tonn. Bendir þetta til þessa að verð á þorski muni haldast hátt á næsta ári og jafnvel lengur.
Árgangar sem koma inn í viðmiðunarstofninn umhverfis Ísland 2023 og 2024 eru taldir vera þokkalega stórir en ekki er vitað með vissu í hversu miklum mæli þeir muni bæta upp skerðingar þorskkvótans, hvað þá minni stofn í Barentshafi.
Minnkar líkur á verkfalli
Þrátt fyrir takmarkað framboð og mikla eftirspurn er ekki sjálfgefið að verði blóm í haga hjá öllum sjávarútvegsfyrirtækjum landsins þar sem minna hráefni gæti haft neikvæð áhrif á rekstur sumra fyrirtækja. En hjá öðrum gæti hærra verð mætt þeim áskorunum.
Eitt er þó víst og það er að sjómenn virðast margir hverjir ánægðir með sinn hlut og viðurkenndi Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, í Morgunblaðinu á dögunum að ekki væri til staðar mikill vilji innan raða félagsmanna til að grípa til allsherjarverkfalls til að knýja fram samninga, meðal annars vegna góðs afurðaverðs.