Stofnvísitala þorsks lækkar

Ekki er ástæða að fagbna í sjávarbyggðum nú þegar vísitala …
Ekki er ástæða að fagbna í sjávarbyggðum nú þegar vísitala þorksks virðist fara minnkandi. mbl.is/Hari

Stofnvísitala þorsks hefur lækkað töluvert frá árinu 2017 þegar hún mældist sú hæsta frá upphafi haustmælingarinnar og er nú svipuð því sem hún var árin 2008-2009, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Hafrannsóknastofnunar. Þar segir að ástæðu lægri vísitölu í ár megi rekja til að minna fékkst af 35-75 sentímetra þorski við stofnmælingu stofnunarinnar sem fram fór 4. október til 3. nóvember.

Árgangar þorsks frá 2020 og 2021 mældust rétt um meðalstærð í stofnmælingu. Reyndist fæða þorsks fjölbreytt en magn loðnu, rækju og ísrækju í mögum þorsks hefur minnkað á síðari árum.

„Stofnvísitala ýsu hefur farið hækkandi frá 2017 en vísitala ufsa hefur farið lækkandi frá árinu 2018. Vísitala gullkarfa var svipuð og í fyrra eftir lækkun fyrri ára. Vísitala djúpkarfa sýndi jákvæða þróun en vísitölur grálúðu og blálöngu breyttust lítið miðað við nokkur fyrri ár og eru undir meðaltali tímabilsins,“ segir í tilkynningunni.

Fleiri stofnar í sögulegu lágmarki

Vísitala gulllax er sú hæsta sem mælst hefur í haustralli en aðra sögu er að segja af stofnum hlýra, tindaskötu, sandkola, langlúru, þykkvalúru, skrápflúru og hrognkelsis sem eru í sögulegu lágmarki. Þá hefur verið léleg nýliðun gullkarfa, djúpkarfa og blálöngu undanfarin ár og er vísitala nýliðunar grálúðu er enn lág og undir meðaltali tímabilsins þrátt fyrir hækkandi gildi undanfarin tvö ár.

„Magn flestra brjóskfiska minnkaði eða stóð í stað frá fyrra ári. Vísitölur margra djúpfiskategunda sem er að mestu að finna í hlýja sjónum suðvestur og vestur af landinu stóðu í stað eða lækkuðu miðað við nokkur fyrri ár og stofn slétthala hefur verið í sögulegu lágmarki undanfarin þrjú ár,“ segir í tilkynningu Hafrannsóknastofnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 31.5.24 366,91 kr/kg
Þorskur, slægður 31.5.24 494,07 kr/kg
Ýsa, óslægð 31.5.24 563,86 kr/kg
Ýsa, slægð 31.5.24 324,77 kr/kg
Ufsi, óslægður 31.5.24 97,30 kr/kg
Ufsi, slægður 31.5.24 257,80 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 31.5.24 341,38 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 30.5.24 362,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.5.24 Jökull ÞH 299 Grálúðunet
Grálúða 48.955 kg
Samtals 48.955 kg
31.5.24 Tjálfi SU 63 Dragnót
Steinbítur 1.550 kg
Skarkoli 1.385 kg
Þorskur 714 kg
Sandkoli 167 kg
Samtals 3.816 kg
31.5.24 Ásdís ÞH 136 Grásleppunet
Grásleppa 2.396 kg
Þorskur 118 kg
Ufsi 81 kg
Skarkoli 28 kg
Samtals 2.623 kg
31.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 918 kg
Þorskur 800 kg
Steinbítur 149 kg
Keila 59 kg
Samtals 1.926 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 31.5.24 366,91 kr/kg
Þorskur, slægður 31.5.24 494,07 kr/kg
Ýsa, óslægð 31.5.24 563,86 kr/kg
Ýsa, slægð 31.5.24 324,77 kr/kg
Ufsi, óslægður 31.5.24 97,30 kr/kg
Ufsi, slægður 31.5.24 257,80 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 31.5.24 341,38 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 30.5.24 362,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.5.24 Jökull ÞH 299 Grálúðunet
Grálúða 48.955 kg
Samtals 48.955 kg
31.5.24 Tjálfi SU 63 Dragnót
Steinbítur 1.550 kg
Skarkoli 1.385 kg
Þorskur 714 kg
Sandkoli 167 kg
Samtals 3.816 kg
31.5.24 Ásdís ÞH 136 Grásleppunet
Grásleppa 2.396 kg
Þorskur 118 kg
Ufsi 81 kg
Skarkoli 28 kg
Samtals 2.623 kg
31.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 918 kg
Þorskur 800 kg
Steinbítur 149 kg
Keila 59 kg
Samtals 1.926 kg

Skoða allar landanir »