Rússar kaupa meirihluta í Vélfagi í Eyjafirði

Bjarmi Arnfjörð Sigurgarðarsson og Ólöf Ýr Lárusdóttir, stofnendur Vélfags, hafa …
Bjarmi Arnfjörð Sigurgarðarsson og Ólöf Ýr Lárusdóttir, stofnendur Vélfags, hafa selt meirihluta í félaginu til rússnesku útgerðarinnar Norebo. Ljósmynd/Vélfag/Silfá Huld Bjarmadóttir

Rússneska útgerðarfélagið Norebo hefur gengið frá kaupum á 54,5% hlut í fyrirtækinu Vélfagi en félagið hefur verið í eigu hjónanna Bjarma Sigurgarðarssonar og Ólafar Ýrar Lárusdóttur. 

Akureyri.net greindi fyrst frá.

Kaupverðið er í fréttatilkynningu sagt trúnaðarmál, en samkvæmt ársreikningi 2020 nam velta fyrirtækisins rúmlega 525 milljónum króna og var hagnaður þess rétt rúmar 32 milljónir.

„Viðskiptin eru afar ánægjuleg fyrir Vélfag og gríðarleg viðurkenning fyrir eigendur og starfsfólk fyrirtækisins. Mikill fengur er í Norebo sem hluthafa og samstarfsaðila, kaupin styrkja mjög stoðir Vélfags og búa fyrirtækið undir aukið þróunarstarf og verulega aukningu í framleiðslu,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að hjónin Bjarmi og Ólöf Ýr munu áfram gegna framkvæmdastjórastöðum sínum en þau stofnuðu Vélfag árið 1995 á Ólafsfirði og er fyrirtækið með starfsemi þar og á Akureyri. Fyrirtækið framleiðir og hannar fyrirtækið tölvustýrðar flökunarvélar, hausara, roðdráttarvélar og allan jaðarbúnað til að koma heilum fiski í flök og áframvinnslu.

Verkefni fyrirtækisins í Rússlandi hefur verið í örum vexti og hefur nú Norebo, sem er stærsta útgerðarfélag Rússlands og meðal þeirra stærstu í heimi, ákveðið að eignast meirihluta í félaginu.

„Við fögnum þessum merka og mikilvæga áfanga í sögu Vélfags. Við erum sannfærð um að þetta sé mikið gæfuspor enda mun aðkoma Norebo skjóta styrkum stoðum undir Vélfag til að takast á við krefjandi framtíð og tryggja jafnframt áframhaldandi þjónustu og gæði fyrir bæði núverandi og framtíðarviðskiptavini. Fram undan eru gríðarmiklar áskoranir í vinnslu og meðferð sjávarafurða í breyttri heimsmynd. Við hlökkum mikið til að takast á við þessi spennandi tækifæri með því öfluga og metnaðarfulla fyrirtæki sem Norebo er,“ er haft eftir stofnendum fyrirtækisins í tilkynningunni.

Stjórn félagsins munu skipa Finnbogi Baldvinsson fyrir hönd Bjarma og Ólafar, en aðrir í stjórn eru Soling Yip, fjármálastjóri Norebo Overseas Holding, og Pavel Kosolapov, framkvæmdastjóri tæknimála hjá Norebo Group.

Nútímavæðing rússnesks sjávarútvegs hefur verið meðal áherslna þarlendra stjórnvalda og hefur fjöldi íslenskra fyrirtækja notið góðs af. Þá hefur skipahönnunarfyrirtækið Nautic opnað skrifstofu í Sankti Pétursborg þar sem starfa tugir manna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 640,70 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 392,97 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,20 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 647,96 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Öðlingur SU 191 Handfæri
Þorskur 4.237 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 4.242 kg
24.7.24 Kristín ÓF 49 Handfæri
Þorskur 820 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 835 kg
24.7.24 Kristín ÞH 15 Handfæri
Þorskur 2.308 kg
Samtals 2.308 kg
24.7.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 4.037 kg
Þorskur 617 kg
Skarkoli 132 kg
Steinbítur 78 kg
Langa 24 kg
Samtals 4.888 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 640,70 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 392,97 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,20 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 647,96 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Öðlingur SU 191 Handfæri
Þorskur 4.237 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 4.242 kg
24.7.24 Kristín ÓF 49 Handfæri
Þorskur 820 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 835 kg
24.7.24 Kristín ÞH 15 Handfæri
Þorskur 2.308 kg
Samtals 2.308 kg
24.7.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 4.037 kg
Þorskur 617 kg
Skarkoli 132 kg
Steinbítur 78 kg
Langa 24 kg
Samtals 4.888 kg

Skoða allar landanir »